Haukar fá Deildarmeistaratitilinn í kvöld!

Við minnum aftur á stórviðburðinn í kvöld er Haukar taka á móti Val í N1-deild karla hér í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Eftir leik fá Haukar afhentan sjálfan Deildarmeistaratitilinn og hvetjum við allt Haukafólk til að koma og fagna með strákunum! Leikurinn hefst kl.19:30. Áfram Haukar!

Marija Gedroit lang markahæst í úrvalsdeild kvenna.

Vinstri skytta Hauka Marija Gedroit var lang markahæst í N1-deild kvenna þennan vetur með 156 mörk,  sú sem næst komst Mariju var Hanna G. Stefánsdóttir með 134 mörk.  Það hefur verið sannkallaður hvalreki fyrir Hauka að fá Mariju til liðs við okkar ungu og efnilegu stelpur.  Marija verður áfram í herbúðum Hauka næsta vetur.  Haukar […]

Úrvaldeild kvenna í handknattleik kvenna lokið

Síðasta Laugardag tryggðu Haukar sér sæti í 8 liða úrslitakeppni íslandsmótssins með sigri á Fylki 31-18.  Ljóst var strax frá fyrstu mínútu að Hauka stelpur ætluðu sér í úrslitakeppnina. Það var mikil skemmtun fyrir áhorfendur á fylgjast með stelpunum í þessum leik sem geisluðu af baráttuvilja og leikgleði.  Viktoría Valdimarsdóttir átti stórleik og skoraði 11 […]

Deildarmeistaratitillinn afhentur á fimmtudag

Haukar eiga heimaleik í N1-deild karla í handbolta á fimmtudaginn nk. og eru andstæðingar okkar Valsarar. Ólíkt hafast liðin að í deildinni um þessar mundir, Valsarar heyja harða fallbaráttu og eru sem stendur í neðsta sæti deildarinnar en við Haukar höfum þegar tryggt okkur Deildarmeistaratitlinn. Titilinn verður einmitt afhentur með viðhöfn eftir leikinn og hvetjum […]

Haukar eru Deildarmeistarar N1-deildarinnar árið 2013

Haukar eru Deildarmeistarar í N1-deild karla í handbolta árið 2013. Þetta varð reyndar ljóst á fimmtudag þegar FH tapaði gegn HK, en með því tapi gátu FH-ingar ekki lengur náð Haukum að stigum. Okkar menn eru mjög vel að titlinum komnir og hafa lengst af í vetur haft mikla yfirburði í deildinni þrátt fyrir að […]

Haukar halda upp í Safamýri á laugardag

Á laugardag halda Haukar upp í Safamýri til að etja þar kappi við heimamenn í Fram í N1-deild karla í handbolta. Leikurinn hefst kl.15:00 og má þess geta að hann er sýndur í beinni útsendingu á Rúv þó við hvetjum að sjálfsögðu Haukafólk til að fjölmenna á staðinn og styðja strákana til sigurs. Fram-liðið er […]

Frítt á leik Hauka og Fylkis

Síðasta umferð N1-deildar kvenna í handbolta þennan veturinn fer fram um helgina. Haukastelpur taka þá á móti Fylki í Schenkerhöllinni kl.13:30 á laugardag. Leikurinn er afar mikilvægur Haukaliðinu því með sigri gulltryggja þær sæti sitt í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn, sem hefst síðar í mánuðinum. Takist Haukum að komast í úrslitakeppni, bíða þeirrar Deildar og nýkrýndir […]

Haukar og FH mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar á sunnudag!

Á sunnudag er sannkallaður risa leikur á dagskrá þegar Haukar og FH mætast í úrslitaleik Símabikarkeppni 2.flokks karla í handbolta í Laugardalshöll. Leikurinn hefst kl.18:00 og vekjum við sérstaka athygli á því að frítt er á völlinn! Strákarnir okkar lögðu Val á dramatískan hátt um sl. helgi í Íþróttahúsinu í Strandgötu þar sem mikil stemmning […]

Sigur hjá stelpunum

Haukastúlkur lönduðu um helgina öruggum og góðum sigri á Aftureldingu í N1-deild kvenna í handbolta. Lokatölur urðu 27-19 fyrir Haukum en í hálfleik var staðan 12-8 Haukastúlkum í vil. Eins og tölurnar gefa til kynna var sigurinn ekki í teljandi hættu og Haukaliðið töluvert betri aðilinn í leiknum. Sigurinn var Haukastúlkum kærkominn í baráttunni um […]

Undanúrslit hjá 2.flokki á morgun!

  Á morgunn laugardag klukkan 16.00 verður sannkallaður stórleikur í bikarkeppni HSÍ. Mætir þá 2fl. karla, Val í íþróttahúsinu að Strandgötu ú 4 liða úrslitum en í boði er úrslitaleikur í laugardalshöll þann 10 mars. Í báðum þessum liðum eru leikmenn sem eru að spila með mfl. liðana. Hjá okkur eru í liðinu m.a. Adam […]