Langar barnið þitt að prófa að æfa handbolta? 8. flokkur byrjar í dag

Handboltaæfingar hefjast í dag hjá 8. flokki þar sem krakkar fæddir árin 2006 og 2007 geta stigið sín fyrstu spor á handboltavellinum. Æfingin hefst kl. 17.10 á Ásvöllum og þjálfarar eru reynsluboltarnir Hulda Bjarnadóttir og Albert Magnússon. Allir krakkar eru velkomnir – ekki síst þeir sem hafa aldrei prófað að æfa en langar til að prófa.  

Báðir leikir Hauka í Evrópukeppninni á heimavelli

Báðir leikir Hauka og hollenska liðsins OCI-Lions í 1. umferð EHF-keppninnar í handknattleik verða spilaðir á heimavelli Hauka í Schenkerhöllinni að Ásvöllum. Fyrri viðureign liðanna verður föstudaginn 13. september og síðari leikurinn daginn eftir. Sigurliðið úr þessari rimmu mætir portúgalska liðinu Benfica í 2. umferðinni

Öflugir þjálfarar í yngri flokkum handboltans – bjóðum alla iðkendur velkomna

Halldór Ingólfsson, Jóhann Ingi Guðmundsson, Hulda Bjarnadóttir, Sigurjón Sigurðsson og Aron Kristjánsson eru meðal þeirra sem koma ný inn í hóp þjálfara og aðstoðarþjálfara yngri flokka handboltans fyrir komandi tímabil. Þau bætast við hóp þjálfara á borð við Einar Jónsson, Jens Gunnarsson, Elías Má Halldórsson, Elías Jónasson, Ragnheiði Berg og Albert Magnússon sem öll þjálfuðu […]

Æfingatöflur yngri flokka handboltans birtar

Grunnskólar Hafnarfjarðar voru settir í dag og af því tilefni eru birtar æfingatöflur yngri flokka handboltans. Æfingar hefjast samkvæmt töflu eftir helgi eða mánudaginn 26. ágúst. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast vel með mögulegum breytingum og viðbótarupplýsingum sem kunna að verða settar inn næstu daga. Eldri flokkar félagsins hafa æft af kappi að undanförnu […]

Handboltinn að fara af stað…

Mfl. karla í handbolta var með sína fyrstu æfingu á laugardag eftir stutt sumarfrí. Næg verkefni eru framundan og mikill hugur í strákunum að gera betur næsta vetur. Nýr þjálfari stýrir liðinu, Patrekur Jóhannesson, en annað er hefðbundið hjá okkur með Óskar og Hörð Davíð með honum og Þorgeir og Sigurjón í brúnni. Nokkrir reynsluboltar […]

Halldór Ingólfsson ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna

Handknattleiksdeild Hauka og Halldór Ingólfsson hafa náð samkomulagi um að Halldór verði aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna og aðalþjálfari 3. flokks kvenna hjá félaginu á næsta tímabili. Haukar bjóða Halldór Ingólfsson hjartanlega velkominn til starfa á ný en Halldór var leikmaður og fyrirliði Hauka um árabil auk þess að vera þjálfari meistaraflokks karla um skeið. Halldór hefur […]

Halldór Ingólfsson ráðinn aðstoðarþjálfari m.fl. kvenna og þjálfari 3. fl. kvenna

Handknattleiksdeild Hauka og Halldór Ingólfsson hafa náð samkomulagi um að Halldór verði aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna og aðalþjálfari 3. flokks kvenna hjá félaginu á næsta tímabili. Haukar bjóða Halldór Ingólfsson hjartanlega velkominn til starfa á ný en Halldór var leikmaður og fyrirliði Hauka um árabil auk þess að vera þjálfari meistaraflokks karla um skeið. Halldór hefur […]

UPPSKERUHÁTÍÐ YNGRA FLOKKA HANDBOLTANS 15. MAÍ

Þá er handboltavertíðin að renna sitt skeið á enda að þessu sinni. Að því tilefni efnir barna- og unglingaráð handknattleiksdeildar Hauka til uppskeruhátíðar yngri flokkanna. Uppskeruhátíðin fer fram miðvikudaginn 15. maí kl. 18.00 á Ásvöllum. Venju samkvæmt verða veittar viðurkenningar, boðið upp á léttar veitingar og farið yfir árangurinn í vetur. Við hvetjum iðkendur og […]

Strákarnir í 5.flokki gera það gott

Síðasta mótið af fimm í Íslandsmóti 5. fl. karla eldra árs í handbolta  var haldið fyrir skömmu í Hafnarfirði.  Haukarnir sendu fjögur lið til keppni sem stóðu sig öll með prýði. B-liðið Hauka sigraði sína deild og A-lið Hauka sigraði 1. deildina eftir harða keppni sem skilaði þeim 2. sætinu á Íslandsmótinu í heildina.

Tvær úr Haukum í U19

Búið er að velja leikmannahóp fyrir U-19 ára landslið kvenna í handknattleik sem byrjaði að æfa saman þann 6. maí sl.Í hópnum eru tveir fulltrúar frá Haukum. Þær Áróra Eir Pálsdóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir. Óskum við þeim innilega til hamingju með valið. Hópurinn mun svo æfa daglega fram að riðlakeppni EM 2013 sem hefst 17.maí […]