Jafntefli í hörkuleik í Eyjum

Meistaraflokkur karla í handbolta spilaði í gærkvöld, föstudagskvöld, leik í Olísdeildinni þar sem mótherjinn var Íslands- og bikarmeistarar ÍBV. Liðin mættust nýverið í undanúrslitum Coca Cola bikarsins þar sem Eyjamenn höfðu betur eftir að Haukarmenn höfðu kastað frá sér sigrinum í seinni hálfleik. Haukamenn voru því í hefndarhug þegar þeir mættu til Eyja staðráðnir í […]

Haukar sækja Eyjamenn heim í Olísdeildinni á morgun

Síðastliðinn mánudag mættu Haukar Stjörnunni í Schenkerhöllinni og voru okkar menn í bílstjórasætinu allan tímann en leikurinn endaði 28-16 (12-7). Margir leikmenn voru að leika vel en enginn betri en Giedrius sem varði 22 skot og var með ca. 61% markvörslu sem er frábært. Á morgun föstudag fara Haukapiltar til Eyja og vilja sæll minninga […]

Haukar – Stjarnan í Schenkerhöllinni í kvöld

Í kvöld kl. 19.30 taka Haukapiltar á móti Stjörnunni í 22. umferð Olísdeildar karla. Þessi lið hafa mæst tvisvar í vetur en fyrri leikurinn var í Schenkerhöllinni 2. október og endaði hann með jafntefli, 26-26 (13-11). Seinni leikurinn var í Mýrinni 27. nóvember og þá sigraði Stjarnan, 29-25 (17-13). Staðan liðanna í deildinni er samt […]

Frábær sigur Hauka á sterku liði Stjörnunnar

Stelpurnar OKKAR í meistaraflokki kvenna unnu í kvöld sterkan 20-21 sigur á liði Stjörnunnar en leikið var í Garðabænum. Haukastelpur leiddu mest allan leikinn og náðu mest með 6 marka forustu. Marija átti stórleik  í vörn og sókn og skoraði 10 mörk þar af 8 í fyrri hálfleik. Í hálfleik var staðan 12-16. Puscas, sem […]

Sögulegur 13 marka sigur Hauka á FH í gær

Það hafa stór lýsingarorð fallið í miðlum dagsins um leik FH og Hauka í gær. Leikurinn var einfaldlega eign Hauka en eftir rúmlega 20 mínútna leik var staðan 2-15 og niðurlæging Fimleikafélagsins algjör. Leikurinn sveiflaðist síðan aðeins en hálfleikstölur voru 7-18. Haukapiltar byrjuðu seinni hálfleikinn af værukærni og náði FH að laga stöðuna í kjölfarið […]

Haukar eru Coca Cola bikarmeistarar í 2. flokki karla

Um síðustu helgi fór fram mikil bikarveisla í Höllinni þegar leikið var til úrslita í Coca Cola bikarnum. Haukar voru með bæði mfl. lið sín í undanúrslitum en hvorugt náði í úrslitaleikinn þetta árið. Hjá yngri flokkunum áttu Haukar tvö lið. 4. karla eldra ár þurfti annað árið í röð að sjá á eftir bikarnum […]

ÍR – Haukar í Olísdeildinni í kvöld kl. 19:30

Eftir bikarveislu síðustu helgar þá heldur Olísdeildin áfram. Stelpurnar okkar heimsækja í kvöld lið ÍR í Austurbergið og hefst leikurinn kl. .19:30. ÍR hefur átt erfitt tímabil í deildinni og eru þær neðstar með 1 stig en okkar konur sitja í 4. sæti með 24 stig. ÍR stúlkur fengu nýjan þjálfara í vikunni og munu […]