Haukar – Víkingur í kvöld kl. 19:30

Eftir flotta leiki um helgina í EHF bikarnum þá er komið að næsta verkefni Haukastráka í Olís deildinni í handabolta. Mótherjar dagsins eru Víkingar en þeir koma í heimsókn í Schenkerhöllina í fyrsta leik í 2. umferð deildarinnir. Liðin mættust í fyrsta leik tímabilsins en þá unnu Haukar þæginlegan sigur 28 – 19. Víkingar standa […]

Evrópuævintýrið lengist

Eftir frábæra frammistöðu í tveimur leikjum um helgina gegn makedónska liðinu HC Zomimak lengist þátttaka meistaraflokks Hauka í handbolta í EHF bikarnum þetta árið. Fyrri leikurinn fór fram á föstudagskvöld og mættu Haukastrákarnir grimmir til leiks. Eftir jafnar fyrstu mínútur þá gáfu Haukastrákarnir í og voru 17 – 7 yfir í hálfleik og gáfu gestunum […]

Haukar – HC Zomimak í Evrópukeppninni á föstudag og laugardag

Haukar munu keppa við HC Zomimak í Evrópukeppni meistaraliða á föstudag og laugardag. Báðir leikir verða leiknir í Schenkerhöllinni og því er mikilvægt fyrir strákana að fá góðan stuðning. Þetta eru evrópuleikir nr. 103 og 104 hjá Haukum. Fyrri leikurinn er kl. 20:00 á föstudaginn og síðari leikurinn verður laugardaginn kl. 16:00. Á undan þeim leik […]

Afturelding – Haukar kl. 19.30 í kvöld

Meistaraflokkur karla í handbolta leikur sinn annan leik á fjórum dögum í Olís deildinni í kvöld þegar Haukar fara á fornar slóðir. Leikurinn í kvöld er gegn Aftureldingu á þeirra heimavelli að Varmá en þetta eru þau tvö lið sem léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn siðastliðið vor og er leikurinn þar sem Haukar tryggðu sér […]

Stórleikir framundan í handboltanum

Haukar og ÍR mætast í toppslag Olís deildar karla á Ásvöllum á föstudagskvöld kl. 19.30. Þetta verður án efa baráttuleikur, en bæði lið hafa byrjað mótið með miklum krafti. Það hefur verið góð stemning á föstudagsleikum og tilvalið að mæta tímanlega og fá sér eitthvað í gogginn á Toggabar fyrir leik. Á föstudag og laugardag í […]

Haukar fara út á Seltjarnarnes

Það er þétt skipað leikjaplanið hjá meistaraflokki karla í handbolta þessa dagana. Eftir góðan sigur á Fram á mánudagskvöld er strax komið að næsta verkefni strákanna er þeir fara út á Seltjarnarnes og mæta þar heimamönnum í Gróttu í kvöld kl. 19:30. Gróttumenn eru nýliðar í deildinni og hafa þeir leikið upp og ofan í deildinni til […]