Hákon Daði Styrmisson til Hauka

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Hákon Daða Styrmisson um að leika með félaginu út tímabilið. Hákon Daði kemur að láni frá ÍBV og eins og fyrr segir gildir samningurinn út tímabilið. Hákon Daði er einn af efnilegustu vinstri hornamönnum landssins og hefur spilað með yngri landsliðum Íslands. Hann spilaði meðal annars stórt hlutverk hjá U19 […]

Haukamenn mæta til leiks í bikarinn

Eftir góða frammistöðu í Íslandsmótinu og í EHF-bikanum það sem af er tímabili þá er komið að annari keppni hjá meistaraflokki karla í handboltanum, því á mogun, laugardag, kl. 16:30 í Schenkerhöllinni spilar liðið sinn fyrsta leik í bikarkeppninni þetta tímabilið. Í seinasta leik í deildinn tapaði liðið í fyrsta sinn í síðustu 10 leikjum […]

Elín Jóna valin í U20 ára landslið kvenna

Elín Jóna Þorsteinsdóttir hefur verið valin í U20 ára landslið kvenna sem mun æfa hér á landi í lok desember. Elín Jóna hefur leikið mjög vel með Haukunum í vetur og á þetta sæti svo sannarlega skilið. Haukarnir óska Elín Jónu til hamingju með þennan áfanga!  

Hafnarfjarðarslagur í kvöld

Það verður sannkallaður stórleikur hjá meistaraflokki karla í handbolta í kvöld þegar nágrannar okkar úr FH koma í heimsókn í Schenkerhöllina í kvöld kl. 19:30. Fyrir leikinn eru FH-ingar í 8. sæti með 12 stig úr 15 leikjum á meðan Haukamenn eru sem fyrr í efsta sætinu nú með 26 stig úr 15 leikjum. Í […]

Haukar fara í Austurberg í kvöld kl. 19:30

Eftir flotta ferð til Frakklands þótt að úrslitin hafi ekki verið eins og Haukastrákarnir hefðu viljað þá fá Haukastrákar ekki langan tíma til að sleikja sárin því strax í kvöld þegar Haukar fara upp í Austurberg og leika við ÍR. Mótherjarnir í ÍR sitja í 8. sæti með 11 stig úr 15 leikjum en í […]

Flott frammistaða í EHF bikarnum – Gróttumenn mæta í Schenkerhöllina í kvöld

Eftir flotta frammistöðu þrátt fyrir tap gegn Saint Raphael Handball í EHF bikarnum um helgina er komið að næsta verkefni meistaraflokks karla í handbolta þegar nýliðar Gróttu mæta í Schenkerhöllina í kvöld, fimmtudag kl. 19.30. Fyrst aðeins um leikinn á sunnudaginn en Haukamenn mættu grimmir til leiks og ætluðu að láta franska stórliðið hafa fyrir […]

Kræklingaveisla fyrir evrópuleikinn á sunnudaginn

Í tilefni heimsóknar Saint-Raphael frá Frönsku Ríveríunni í Frakklandi verður slegið upp kræklingsveislu á Ásvöllum fyrir leikinn á sunnudag. Saint-Raphael er eitt öflugasta handknattleikslið sem komið hefur til landsins undanfarin ár og ætti enginn áhugamaður um hanknattleik að láta leikinn fram hjá sér fara. Herlegheitin hefjast kl 16.30 í veislusalnum á Ásvöllum og hefst leikurinn […]