Þrír leikmenn ganga til liðs við meistaraflokk karla í handknattleik

Þrír leikmenn hafa gengið til liðs við meistaraflokk karla Hauka í handknattleik fyrir næsta tímabil. Það er mikið ánægjuefni fyrir handknattleiksdeild Hauka að kynna þennan öfluga liðsauka:   Daníel Þór Ingason (f. 1995) er genginn til liðs við Hauka frá Val. Daníel er uppalinn Haukamaður sem hefur leikið að Hlíðarenda undanfarin ár við góðan orðstír. […]

Meistaraflokkur kvenna í handknattleik fær öflugan liðsstyrk

Elín Anna Baldursdóttir er gengin til liðs við Hauka og gerir hún tveggja ára samning við félagið. Elín Anna lék með FH á síðustu leiktíð, en hún hefur einnig leikið með ÍBV og uppeldisfélagi sínu HK. Elín Anna er mikill liðsstyrkur fyrir Hauka og henni er ætlað stórt hlutverk í liðinu á komandi leiktíðum, bæði í stöðu […]

Íslandsmeistarar Olísdeildar karla verða krýndir á fimmtudag – miðasala er hafin!

UPPFÆRÐ FRÉTT: Fimmtudaginn 19. maí fer fram oddaleikur í einstæðu úrslitaeinvígi Hauka og Aftureldingar um Íslandsmeistaratitil Olísdeildar karla. Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni að Ásvöllum og hefst kl. 20.00. Miðasala er þegar hafin ólíkt því sem tilkynnt var í gær, þriðjudag. Frítt er fyrir 15 ára og yngri, auk ellilífeyrisþega. Húsið opnar kl. 18.00 á fimmtudaginn […]

Tveir leikir á morgun

Haukar – Afturelding kl 16:00 Haukar – K.A. kl 17:15 Það verður sannkallaður Haukadagur á Laugardag á Ásvöllum en þá mætast Haukar – Aftureldin kl 16:00 en þetta er þriðji leikur strákanna í úrslitakeppni Olísdeildarinnar í handbolta Haukar og KA mætast svo klukkan 17:15 í fyrsta heimaleik okkar í Inkasso deildinni í fótbolta. Frábært tækifæri […]

Rútur frá Ásvöllum kl. 18 á miðvikudag á annan leik Hauka og Aftureldingar

Úrslitaeinvígi Hauka og Aftureldingar um Íslandsmeistaratitil Olísdeildar karla heldur áfram á morgun, miðvikudag. Afturelding sigraði fyrsta leik liðanna og því skiptir sköpum að strákarnir fái öflugan stuðning Haukafólks í öðrum leiknum, sem fer fram í Mosfellsbæ. Nú er skemmtilegasti tími ársins í handboltanum og allir þurfa að leggjast á árarnar til að búa til einstaka […]

Tveir hjá Haukum í U18 ára landsliði karla

Þeir Andri Scheving og Darri Aronsson voru valdir í  22 manna hóp hjá U18 ára landsliðs karla í handbolta. Hópurinn kemur saman til æfinga 9. – 12. júní n.k. Eftir það verður valinn 16 manna lokahópur sem tekur þátt í æfingamóti í Þýskalandi í lok júní og EM í Króatíu í ágúst. Við óskum þessum efnilegu drengjum innilega […]