Úrslitakeppnin í handbolta fer af stað

Það er komið að hápunkti tímabilsins í handboltanum sjálfri úrslitakeppninni en í kvöld hefja stelpurnar í meistaraflokki leik þegar að þær halda í Valshöllina og etja kappi við deildarmeistara Vals kl. 19.30. Haukastelpur mæta dýrvitlaustar til leiks ólmar í það að hefna fyrir tapið í síðasta leik þegar að liðin áttust við í hreinum úrslitaleik um […]

Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka Nú um miðjan mars var gengið frá ráðningu Arons Kristjánssonar og mun hann taka við nýju starfi hjá Handknattleiksdeild Hauka sem Framkvæmdastjóri íþrótta- og markaðsmála.  Aron mun taka til starfa þegar hann lætur af störfum nú í sumar sem þjálfari Danmerkurmeistara Álaborgar. Aron mun í fyrstu sinna starfinu samhliða þjálfun á […]

Hkd Hauka 60 ára í dag

Í dag 24. mars er eru 60 ár síðan handknattleiksdeild Hauka var stofnuð innan félagsins en fyrir þann tíma var leikinn handbolti undir merkjum Knattspyrnufélags Hauka. Á þessum tíma hefur starfið eflst jafnt og þétt og hefur aldrei verið öflugra en einmitt nú. Þessa dagana er verið að taka í notkun nýjan æfingasal á Ásvöllum […]

Aftur mæta Haukastúlkur Fram

Meistaraflokkur kvenna í handbolt fær í kvöld tækifæri til þess að hefna fyrir tapið í bikarúrslitum fyrir Fram þegar að liðin mætast í næst síðustu umferð Olís deildar kvenna. Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni kl. 19:30 í kvöld, miðvikudagskvöld, og eru liðin í harðri baráttu í efstu sætum deildarinnar en með sigri geta Haukastúlkur farið […]

Bikarfjörið heldur áfram – Fríar rútuferðir

Eftir góðan sigur hjá stelpunum í sínum undanúrsltaleik í gær, fimmtudag heldur fjörið í Final 4 áfram í kvöld, föstudagskvöld, en nú er komið að strákunum í meistaraflokki karla í handbolta að spila sinn undanúrslitaleik en þeir spila kl. 17:15 í Laugardalshöll. Mótherjinn er ÍBV en þessi lið hafa leikið marga úrslitaleikina á síðustu árum og […]

Bikarfjörið hefst í kvöld – fríar rútuferðir

Final 4 fjörið hefst í kvöld þegar að stelpurnar í meistaraflokki kvenna í handbolta spila í undanúrslitum kl. 19:30 í Laugardalshöll. Mótherjinn í kvöld er KA/Þór en þær hafa leikið vel það sem af er tímabili og sitja þær í efsta sæti Grill 66 deildar kvenna en í 8. liða úrslitum unnu þær Olís-deildarlið Fjölnis […]

Final 4 í handboltanum – Miðasala hafin

Nú er komið stutt hlé á deildarkeppni hjá meistarflokki karla og kvenna en í næstu viku taka bæði meistaraflokkslið Hauka þátt í Final 4. Fjörið hefst á undanúrslitum kvenna en þá mæta Haukastúlkur KA/Þór fimmtudaginn 8. mars kl. 19:30 í Laugardalshöll. Daginn eftir spila karlarnir við ÍBV kl. 17:15 einnig í Laugardalshöll. Úrslitaleikirnir verða svo […]

Strákarnir fara á Seltjarnarnesið

Það er spilað þétt þessa daganna hjá meistaraflokki karla í handbolta en á morgun, miðvikudag, halda þeir á Seltjarnarnesið og spila þar við Gróttu kl. 19:30 í Hertz-höllinni. Fyrir leikinn eru liðin á misjöfnum stað í deildinni en Haukar eru í harðri baráttu um heimaleikjarétt í úrslitakeppninni á meðan Grótta er í harðri fallbaráttu þegar […]