Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Óskilamunir.

    Kæru foreldrar/forráðamenn. Það er mikið af óskila munum/fatnaði á Ásvöllum – bæði inni í vallarhúsi og eins inni á Ásvöllum. Foreldrar eru beðnir að athuga hvort eihvað vanti hjá krökkunum og koma þá á Ásvelli og athuga hvort hluturinn sé þar.

  • Óli Jón skoraði!

    Meistaraflokkur karla sigraði Reyni Sandgerði 10-1 í æfingaleik í Fífunni í gærkvöldi. Hápunktur kvöldsins var án ef þegar varnartröllið Óli Jón Kristinssson kom boltanum í mark andstæðinganna. Mark Óla Jóns var einkar glæsilegt og minnti mjög á mark Ríkharðs Daðasonar á móti Frökkum um árið – bara fallegra. Margir aðrir leikmenn sem voru á skotskónum…

  • Lokaútkall á dómaranámskeið

    Nú er að ljúka skráningu á dómaranámskeið sem hefst á föstudag. Síðasti skráningardagur er í dag miðvikudag 15 feb.-06 Fyrirkomulag Þátttakendur sækja námsefnið hingað á vefinn og fá verkefni send í tölvupósti í þrennu lagi, 17/02, 24/02 og 03/03. Námskeiðinu lýkur síðan með prófi 11/03. Próf Prófið sjálft verður ekki þreytt í gegnum netið, heldur…

  • 3.flokkur karla

    Ágæta foreldri/forráðamaður 14.01.´06 Eins og áður hefur verið kynnt verður farið þann 30. júlí í æfinga- og keppnisferð til Danmerkur og komið heim þann 06. ágúst. Þar verður tekið þátt í Bröndby-cup og er ætlunin að skrá tvö lið til keppni en raðað er eftir styrkleika á mótið og því munum við vera með bæði…

  • Foreldrafundur

    Í kvöld, 14. febrúar verður foreldrafundur fyrir foreldrar drengja í 8. flokk.Fundurinn hefst kl: 20:30 og verður í íþróttahúsinu á Ásvöllum, 2. hæð. Ég vonast til að sjá sem flesta. kv. Óli gsm. 6943073

  • Fjáröflun hjá 6 flokk drengja

    Kæru foreldrar drengja í 6.flokki knattspyrnu hjá Haukum Nú er komið að fyrstu fjáröflun til að standa straum af kostnaði við keppnisferðir vegna sumarsins 2006. Þessi fyrsta fjáröflun mun verða sala á sjófrystum roðlausum og beinlausum ýsuflökum. Um er að ræða sjófrystar blokkir sem eru ríflega 9kg og mun blokkin verða seld á 6000 kr….

  • Haukar sigruðu í Njarðvíkurmótinu

    Á sunnudaginn sl. fór fram Njarðvíkurmótið í 6.flokki í Reykjaneshöll. Alls 24 lið tóku þátt með samtals hátt í 200 keppendum. Eftirfarandi félög tóku þátt Grindavík, Haukar, Keflavík, Njarðvík, Víðir / Reynir og Þróttur Vogum sem léku í fjórum deildum. Haukar uinnu mótið þar sem þeir sigruðu í Argentísku deildinni glæsilega en þeir unnu alla…

  • Haukar – FH 0-1

    Meistaraflokkur karla tók á móti nágrönnunum í FH í æfingaleik í Fífunni um sunnudagskvöldið. Leiknir voru þrír 35 mínútna hálfleikar og lauk leiknum með 0-1 sigri FH. Það var ekki ýkja margt sem gladdi augu þeirra þó nokkuð margra áhorfenda sem lögðu leið sína í Fífunan þetta kvöld þar sem hvorugt lið sýndi neina sérstaka…