Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Sex leikmenn framlengja við Hauka

    Í hádeginu í dag var fréttamannafundur á Ásvöllum eins og áður hefur verið greint hér á síðunni. Þar var tilkynnt um nýjan leikmann, Andri Marteinsson þjálfari framlengdi samning sinn við Hauka og tilkynnt að Haukar munu spila einhverja heimaleiki sína á Vodafonevellinum næsta sumar. Auk þess skrifuðu sex leikmenn undir nýjan samning við Hauka. Allir…

  • Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild Hauka

    Knattspyrnudeild Hauka sendi nú rétt í þessu fréttatilkynningu frá sér vegna tíðinda síðustu klukkutíma, m.a. vegna félagskipta Guðmunds Viðars Mete í Hauka, nýs samnings Andra Marteinssonar við Hauka og „nýja heimavöll“ Hauka á næsta ári.  Fréttatilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan. Knattspyrnusumarið 2009 er án nokkurs vafa besta knattspyrnusumar Hauka frá upphafi. Frábær árangur í…

  • Guðmundur Mete til liðs við Hauka

    Haukar hafa fengið góðan liðstyrk fyrir komandi tímabil í Pepsi-deildinni að ári en varnarmaðurinn Guðmundur Viðar Mete hefur skrifað undir samning hjá Haukum en hann kemur frá systrafélagi Hauka, Val. Guðmundur gerir tveggja ára samning við Hauka. Guðmundur er sem fyrr segir varnarmaður og lék með Val á síðasta tímabili en meiðsli voru að hrjá…

  • Hvaða leikmenn eru orðaðir við Hauka?

    Fótbolti.net vinsælasta íþróttasíða Íslands birti í vikunni ítarlegan íslenskan slúðurpakka en þetta var annar slúðurpakkinn sem þeir birta eftir tímabilið. Eins og Fótbolti.net tekur fram kemur fram helsti orðrómur sem gengur í „bænum“ og þeir ítreka að þetta er bara orðrómur og ekkert staðfest er í þessum slúðurpakka. Nokkur nöfn hafa verið orðuð við Hauka…

  • Guðjón Pétur Lýðsson í viðtali

    Eins og greint var hér á síðunni fyrr í þessari viku var Guðjón Pétur Lýðsson og Þórhallur Dan Jóhannsson kosnir í úrvalslið 1.deildar sem fyrirliðar og þjálfarar kusu leikmenn í liðið. Helgina áður var Guðjón valinn besti leikmaður Hauka á lokahófi knattspyrnudeildarinnar og Þórhallur Dan var valinn mikilvægastur. Við fengum Guðjón Pétur í stutt eða…

  • Fjórir Haukarar í úrtakshóp U-17

    Um næstu helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Hópurinn að þessu sinni sem Gunnar Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi inniheldur 36 stráka fædda árið 1994. Í þeim hópi eru hvorki fleiri né færri en fjórir Haukarar, en Haukar eiga flesta leikmenn í hópnum. Þeir Haukarar sem hafa verið valdir eru, Arnar Aðalgeirsson,…

  • Haukamenn í liði ársins á Fótbolti.net

    Í gær var lið ársins í 1.deild karla í knattspyrnu opinberað. Það eru þjálfarar og fyrirliðar liðanna í 1.deildinni sem velja liðið en Fótbolti.net sá um kosninguna og hefur þetta verið gert undanfarin ár hjá síðunni. Einnnig var valið þjálfara og besta leikmenn deildarinnar sem og efnilegasta leikmanninn. Haukar áttu tvo leikmenn í liði deildarinnar,…

  • Glæsilegt lokahóf hjá knattspyrnudeildinni

    Það var mikil gleði og mikið fagnað á lokahófi Knattspyrnudeildar Hauka í gærkvöldi enda líklega eitt besta knattspyrnusumar Hauka að ljúka frá upphafi. Hjálmar Hjálmarsson eða Haukur Hauksson eins og hann kallaði sig í gær var veislustjóri kvöldsins. Mætingin var gríðarlega góð og líklega fjölmennasta lokahóf frá upphafi, allavegana í langan tíma. Að sjálfsögðu voru…