Almenningsíþróttadeild fréttir

Fréttir úr Almenningsíþróttadeild

  • Vel heppnaður Haukadagur

    Fjölskyldudagur Hauka var haldinn hátíðlega síðasta laugardag og heppnaðist hátíðin afar vel. Fjölmargir mættu til að taka þátt í deginum enda margt á boðstólnum. Allar deildir félagsins voru með kynningarstarf, hægt var að ná sér í N1 kort, skrá sig í Hauka í horni og fá sér pylsur og vöfflur. Í salnum voru krakkarnir á…

  • Golfmót Hauka 2012

    Flott þátttaka var í Golfmóti Hauka árið 2012 sem fram fór á Keilisvellinum á föstudaginn síðast liðinn við góðar aðstæður í flottu veðri. Hvorki fleiri né færri en 110 manns mættu til að taka þátt í mótinu sem var nú haldið í 22 skipti. Að vanda var keppt um Rauða jakkann og Baddaskjöldinn sem gefinn…

  • Nokkur sæti laus í golfmót Hauka

    Enn eru nokkur sæti laus á Golfmót Hauka sem fram fer á föstudaginn næst komandi!! Mótið verður haldið á golfvelli Keilis, föstudaginn 17. ágúst nk. Keppt er um Baddaskjöldinn í höggleik án forgjafar. Keppt er um Rauða Jakkann í punktakeppni. Hámarksforgjöf kvenna og karla er 28. Konur leika af rauðum teigum, karlar af gulum teigum. Nándarverðlaun verða veitt fyrir…

  • Vorferð öldungaráðs

    Hann var eftirvæntingarfullur 35 manna hópur félaga úr Öldungaráði Hauka sem lagði upp í óvissuferð sl. fimmtudag héðan frá Ásvöllum. Sólin  að brjótast út  úr skýjaþykkni á austurhimninum á þessum fimmtudagsmorgni sem gaf fyrirheit um góðan dag. Ekin var Krísuvíkurleið og Suðurstrandarvegur í sveitir Suðurlands með áningu og skemmtilegum fróðleikskornum fyrrum formanns félagsins, Eiríks Skarphéðinssonar….

  • Aðalfundir deilda

    Á næsta leiti eru aðalfundir allra deilda í Knattspyrnufélaginu Haukum. Fundirnir verða sem hér segir: Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar mánudaginn 6. febrúar kl.20:00 Aðalfundur Skákdeildar þriðjudaginn 7. febrúar kl.19:30 Aðalfundur Handknattleiksdeildar þriðjudaginn 7. febrúar kl.19:00 Aðalfundur Almenningsdeildar þriðjudaginn 7.febrúar kl.20:00 Aðalfundur Knattspyrnudeildar miðvikudaginn 8. febrúar kl.20:00 Aðalfundur Karatedeildar (fundartími óákveðin). Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 16. febrúar…

  • Íþróttafólk Hauka árið 2011

    Íris Sverrisdóttir, körfuknattleikskona og Aron Rafn Eðvarðsson, handknattleiksmaður voru valin íþróttakona og íþróttamaður Hauka árið 2011 og Aron Kristjánsson var valinn íþróttaþjálfari Hauka árið 2011, þetta var tilkynnt á hinu árlega viðurkenningarhófi sem haldið var fyrir stuttu.  Íris hefur spilað með öllum kvennalandsliðum Íslands í körfubolta á sínum ferli og er einn af máttarstólpum kvennaliðs…

  • Opinn fyrirlestur fyrir Haukafólk

    Ágætu Haukafélagar,  Þríþrautarkonan Karen Axelsdóttir mun halda erindi um þolþjálfun og segja frá ferli sínum næstkomandi mánudag, 15. ágúst kl. 20.30 í veislusalnum á Ásvöllum. Karen er núverandi Íslandsmethafi í þríþraut kvenna og karla. Hún er eini Íslendingurinn sem hefur náð að vinna sér inn keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í þríþraut, en það fer fram í Hawaii…

  • Hlaupagarpur úr Haukum kláraði 100 km.

    Um Hvítasunnuhelgina, nánar tiltekið laugardaginn 11. júni sl., var Íslandsmeistaramótið í 100 km. hlaupi haldið. Þetta hlaup er lengsta og eflaust um leið erfiðasta götuhlaup landsins. Átján hlauparar lögðu af stað í morgunsárið frá Nauthólsvíkinni og við Haukarar áttum okkar fulltrúa á staðnum. Annar af fyrirliðum Skokkhóps Hauka, Anton Magnússon, hljóp sitt fyrsta 100 km….

  • Að stíga sín fyrstu skref

    Að nálgast sjálfan sig eru kannski mikilvægustu skrefin sem maður tekur í átt til betri heilsu. Það getur enginn hreyft sig, skokkað, hjólað eða yfir höfuð gert eitt eða neitt á forsendum annarra. Allt verður að miðast við mann sjálfan. Hópurinn okkar hefur vaxið úr því að vera örfáir sérvitringar sem hittust og skokkuðu sér…