Almenningsíþróttadeild fréttir

Fréttir úr Almenningsíþróttadeild

  • Almenningsíþróttadeild Hauka stofnar Hjólahóp þriðjudaginn 12. Apríl 2011

    Hópurinn er ætlaður öllum almenningi sem áhuga hefur á að stunda reglulega líkamsrækt með því að hjóla um Hafnarfjörð og nágrenni á reglubundnum æfingatímum. Stofnfundurinn verður haldinn að Ásvöllum á 80 ára afmælisdegi Hauka 12. Apríl 2011 kl.18:30. Fundurinn er opinn öllum sem hafa yfir hjóli að ráða, hvort sem það er keppnishjól eða  hjól…

  • Skokkhópur Hauka leggur í langferð til Berlínar

    Skokkhópur HAUKA samanstendur af gríðarlega duglegu og framtaksömu fólki á öllum aldri. Ekki nóg með að við æfum stíft þrisvar í viku og höldum uppi fjöri og gleði á æfingum heldur fær þessi frábæri hópur stundum ótrúlega góðar hugmyndir. Fyrir um það bil tveimur árum vaknaði sú hugmynd að fara hópferð til Berlínar til þess…

  • Reykjavíkur maraþon 2010

    Hvað er hægt að segja eftir svona ævintýri? Reykjavíkur maraþonið 2010 var hreint út sagt stórkostleg upplifun og stemningin engu lík. Niðurstaðan var að tæplega sjötíu félagar úr Skokkhópi HAUKA tóku þátt og skemmtu sér konunglega. Lang flestir bættu tímana sína og voru jafnvel dæmi um tuttugu mínútna bætingar í sumum hlaupum. Aldursforsetinn okkar, Eysteinn…

  • Gríðarlega öflugt starf

    Skokkhópur HAUKA hefur vaxið og dafnað undanfarin misseri. Skemmtilegar æfingar og enn skemmtilegri félagsskapur hefur orðið til þess að gera Skokkhóp HAUKA að einum eftirsóttasta og jafnframt stæðsta hlaupahóp landsins. Flestir hlaupahópar skrá öll sín hlaup inn á síðunni hlaup.com. Til marks um hve öflugur Skokkhópur HAUKA er þá tók okkur ekki nema um tvo…

  • Fjölskyldudagur, þrif og skemmtun

    Almenningsíþróttadeild Hauka (Skokkhópur Hauka) boðar til fjölskyldudags næsta laugardag. Allir sem vettlingi geta valdið mæta á Ásvelli kl. 10.00.  Amma, afi, mamma, pabbi, börn, vinir, ættingjar og allir hinir mæta með góða skapið og nú verður tekið til hendinni. Við ætlum að hreinsa beðin og planta fyrir framan húsið. Snyrta nánasta umhverfi og gera Ásvelli…

  • Fjölmennt afmælishlaup Hauka

    Þessi skemmtilega frásögn er tekin af samskiptasíðu almenningsdeildar Hauka.    „Haukarnir eru 79 ára í dag. Ungt, bráðmyndalegt og vel þroskað félag með enn fallegri félagsmenn. Af þessu tilefni buðum við í Almenningsíþróttadeild upp á hið árlega afmælishlaup. Í samræmi við aldur afmælisbarnsins var vegalengdin valin 100m fyrir hvert ár eða 7,9km í allt. Þar…

  • Skokkhópur Hauka – allir velkomnir

    Fjölmennur hópur á vegum Almenningsíþróttadeildar Hauka tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu sem fór fram 22. ágúst síðastliðinn. 44 skokkfélagar tóku þar þátt, þar af 24 félagar sem hlupu 10 km og 20 sem fóru hálft maraþon eða 21,1km. Félagar úr skokkhópnum ætla að taka þátt í Brúarhlaupinu á Selfossi sem fer fram laugardaginn 5. september n.k….

  • Hlaupið undirbúið

    Það verður stór hópur Haukamanna sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka um helgina. Um 40 manna hópur á vegum Almenningsíþróttardeildar Hauka hefur verið að undirbúa sig undir hlaupið en maraþonið er á morgun.   Í vikunni var lokaundirbúningurinn en sjaldan eða aldrei hafa jafn margir skráð sig í hlaupið. Starfsemi Almenningsíþróttadeildarinnar er glæsilegur og er…

  • Fyrsta Gamlársdagshlaup Hauka

    Á gamlársdag verður Gamlárshlaup Hauka þreytt í fyrsta sinn og hefst hlaupið kl. 10:30 við Ásvelli. Almenningsíþróttadeild Hauka stendur fyrir hlaupinu. Vegalengda án tímatöku er 10 km. Að loknu hlaupi gefst þátttakendum tækifæri til að vera við árlega tilnefningu á íþróttamanni Hauka, athöfnin á sér stað í veislusal Hauka kl.12:30.