C – deildar meistarar

3. flokkur karla spilaði til úrslita í C – deild 3. flokks sunnudaginn 3. september en leikurinn var á Ásvöllum og var á móti HK. Í undanúrslitum unnu Haukar Völsung 4 – 1 og HK unnu Tindastól 6 – 2. Sigurvegarinn úr þessum leik keppir á móti FH í undanúrslitum Íslandsmóts í 3. flokki. Þetta er annar leikur Hauka og HK í sumar en fyrri leikurinn fór 6 – 2 Haukum í vil.

Liðið var eins og í leiknum á móti Völsungi Emmi fyrirliði í markinu og í vörninni fyrir framann hann voru Nonni, Sindri, Friðrik og Arnar Freyr. Á miðjunni voru Heiðar, Ásgeir, Helgi og Aron fyrir framann þá Tjörvi og svo fremstur Enok.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir okkar menn því strax á 11. mínútu fékk Kolbeinn Sigþórsson sendingu innfyrir vörn Hauka og kom HK í 0 – 1. Svo á 39. mínútu bættu HK – menn við marki eftir að Emmi hafi slegið hornspyrnu HK út náði Aron Palomares boltanum og skaut í einn Haukamann og í netið og Hk komir í 0 – 2 og þannig var staðan í hálfleik.

Í hálfleik kom Einvarður(Einsi) inn á og Helgi fór útaf. Síðan á 60. mínútu fór Tjörvi útaf og Sverrir kom inná. Mínútu síðar átti Ásgeir frábæra aukaspyrnu sem S. Tandri séð illa við og sló boltann út en þar var Enok og skallaði boltann í netið 1 – 2 HK í vil. Síðan um miðjann seinni hálfleik kom Hafsteinn inn á og Heiðar fór útaf.

Svo undur lok leiksins komu Bjarni og Heimir inn á og Enok og Aron fóru útaf. Svo í viðbótartíma átti ArnarFreyr góða aukaspyrnu frá hægri og eftir klafs í teignum náði Heimir að pota boltanum í netið og tryggði Haukum framlengingu. Í framlengingunni gerðist fátt markvert og grípa þurfti þá til vítaspyrnukeppnar.

Haukar byrjuðu í að taka víti og skoraði Ásgeir glæsilega úr því. Næst var komið Að Kolbeini Sigþórs að taka víti fyrir HK en emil gerði sér lítið fyrir og varði. Næstu að taka víti var Heimir en hann skorðaði og kom Haukaum í góða stöðu. Hk átti næsta víta og skorað var úr því næstur fyrir Hauka var Bjarni en hann lét verja frá sér. Næst var það Damir Muminovic sem jafnaði fyrir HK næstur til að taka víti var emil sjálfur og skoraði hann af fádæma öryggi en svo í næstu skyrnu á eftir varði hann frá Zlatko Krickic. Ef Friðrik myndi skora úr síðasta víti Hauka myndi hann tryggja liðinu C – deildarmeistaratitilinn sem hann og gerði.

Haukar unnu í vítaspyrnukeppni 4 – 2 og keppa á móti FH á Kaplakrika föstudaginn 8. september kl. 16:00 og sigurvegarinn þar mæti annaðhvort Þór eða KR í úrslitum en þau keppa í hinum undanúrslitaleiknum en úrslitaleikurinn varður sunnudaginn 10. september. Þess má geta að 3. flokkur kvenna keppir á laugardeginum á móti Breiðabliki á Fylkisvelli kl. 12:00 en þessi leikur er úrslitaleikur í VISA-bikar í 3. flokki kvenna. Sjáumst á Kaplakrika á föstudag og Fylkisvelli á laugardag. Áfram Haukar!!!