Bikarleikir yngriflokka til sölu á DVD
Um helgina fóru fram bikarúrslit yngriflokka KKÍ að Ásvöllum og voru okkar menn í Haukar-TV á staðnum og bjóða þeir nú alla bikarleiki helgarinnar á bikarúrslitahelgi yngri flokka á DVD-disk en hver leikur kostar kr. 2000. Margir spennandi og skemmtilegir leikir voru á boðstólunum þessa helgina en mótið var í umsjón Hauka.
9. flokkur drengja: Tindastóll
10. flokkur stúlkna: Keflavík
10. flkkur drengja: Höttur
11. flokkur drengja: Njarðvík/Grindavík
Stúlknaflokkur: Keflavík
Drengjaflokkur: Njarðvík
Unglingaflokkur kvenna: Snæfell
Unglingaflokkur karla: Haukar
