Bikarkeppni, 8 liða úrslit
Fjölnismenn tóku á móti Haukum við frábærar aðstæður á Fjölnisvelli iðagrænum í sólskini. Við fundum aldrei taktinn á móti frísku liði Fjölnis og vorum reyndar slegnir út af laginu af dómartríóinu í stöðunni 0-1. Leikur þessara liða hefði getað orðið besta skemmtun ef dómgæslan hefði verði góð, en hins vegar réð hún ekki úrslitum. Sigur Fjölnis var sanngjarn – þeir voru betri.
