Anna Rut valin í U16 ára landsliðið sem mætir Sviss

Anna Rut Ingadóttir, leikmaður 3. flokks kvenna, hefur verið valin til að taka þátt í æfingaleikjum U16 ára landsliðs kvenna við Sviss.

Leikið og æft verður í Miðgarði í Garðabæ dagana 22. til 26. febrúar.

Anna Rut sem er fædd árið 2006 hefur einnig verið að æfa með meistaraflokki kvenna og tekið þátt í leikjum.

Knattspyrnudeild Hauka óskar Önnu innilega til hamingju með valið og óskar henni góðs gengis í komandi verkefni með U16.

Ljósm. Hulda Margrét

Anna Rut Ingadóttir