16-úrslit Coca Cola bikarsins í handbolta fara fram í vikunni og því spennandi leikir framundan.
Karlaliðið mun halda út á Seltjarnarnes á miðvikudaginn, 16. febrúar, og munu þar etja kappi við Gróttu. Leikurinn er kl. 20:00 og verður sýndur í beinni á RÚV.
Kvennaliðið spilar svo gegn Selfoss á fimmtudaginn, 17. febrúar. Leikurinn verður í Set-Höllinni kl. 19:30.