Eysteinn Þorri Björgvinsson skrifar undir samning við knattspyrnudeild Hauka

Varnarmaðurinn Eysteinn Þorri Björgvinsson hefur skrifað undir samning við Hauka.

„Það er gleðiefni að Eysteinn hafi gengið til liðs við Hauka. Þetta er leikmaður sem býr yfir miklum hæfileikum og er fjölhæfur varnarmaður og getur svo sannarlega orðið frábær leikmaður fyrir Hauka. Eysteinn hefur áður spilað fyrir Fjölni, Þrótt Vogum, Fjarðarbyggð og er uppalinn hjá Breiðablik. 

Knattspyrnudeild Hauka fagnar því að Eysteinn hafi gengið til liðs við liðið og taka slaginn í 2  deildinni á næstu leiktíð.

Eysteinn Þorri

Eysteinn Þorri – Mynd: Hulda Margrét