Aðalfundur knattspyrnudeildar 2009

Haukar

Fundargerð 

Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka var haldinn 8. janúar s.l., kl. 20:00.  Fundurinn var opinn fyrir þá sem eru í stjórnum og ráðum knattspyrnudeildar Hauka, fyrir iðkendur knattspyrnudeildar og fyrir foreldra iðkenda svo og alla aðra stuðningsmenn deildarinnar.  Samkvæmt grein 8.06 í lögum félagsins hafa meðlimir deilarinnar sem eru 14 ára og eldri atkvæðarétt á fundinum.  Góð mæting var á fundinn og í samræmi við þann mikla kraft sem er í starfi deildarinnar.

 Flutt var skýrsla stjórnar knattspyrdeildarinnar fyrir síðastliðið starfsár.  Gríðarlegur vöxtur er í starfsemi deildarinnar.  Iðkendum fjölgar mikið í yngri flokkkum og lið 4. flokks karla varð Íslandsmeistari.  Glæsilegur hópur þar á ferð.  Meistaraflokkur karla spilaði í 1 deild og var nærri úrvalsdeildarsæti um miðbik mótsins, en það seig á ógæfuhliðina seinni hlutann og endaði liðið um miðja deild.  Meistaraflokkur kvenna stóð sig vel á undirbúningstímabilinu, en lenti í mótlæti í byrjun móts og náði sér aldrei á strik.  Það er mikil uppbygging í gangi í báðum meistarflokkum deildanna og þess er að vænta að báðir meistarflokkarnir verði innan skamms í úrvalsdeild. 

Þá fór fram kosning stjórnar deildarinnar.  Formaður var kosinn Jón Björn Skúlason.  Aðrir stjórnarmenn eru Gréta Grétarsdóttir, Arndís Magnúsdóttir, Hugrún Árnadóttir, Jónas Sigurgeirsson, Ingvar Magnússon, Agnar Steinn Gunnarsson, Elías Atlason, Friðþjófur Blöndal, Guðmundur Jónsson, Kristján Ómar Björnsson og Sigurður Haraldsson.  Stjórnin skiptir með sér verkum og skipar í nefndir og ráð innan deildarinnar.

Þá voru Jón Björn Skúlason og Gréta Grétarsdóttir tilefnd í aðalstjórn félagsins.

Samþykkt var að stjórnin veldi fulltrúa á aðalfund félagsins í samræmi við lög félagsins.

Engin önnur mál voru á dagskrá.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…