Haukamótið í golfi 2008 verður haldið á golfvelli Keilis, föstudaginn 22. ágúst nk.
Keppt er um Baddaskjöldinn í höggleik án forgjafar og einnig er keppt um Rauða Jakkann í punktakeppni, full forgjöf
Keppendur með leikforgjöf 29 og yfir leika á rauðum teigum. Keppendur með leikforgjöf 28 og undir leika á gulum teigum. Nándarverðlaun verða veitt fyrir næst holu á 4. 6. og 10. braut og fyrir annað högg á 18. braut. Dregið verður úr skorkortum þeirra sem ekki hljóta verðlaun í mótinu
Skráning í mótið er á www.keilir.is og í golfvöruverzlun í síma 5653360
Þátttökugjald er 3000 krónur. Verðlaunaafhending verður kl. 20 í golfskálanum.
Tiger Woods hefur enn ekki afrekað það að vinna Rauða jakkann eftirsótta.