Á fimmtudaginn næstkomandi koma KA-menn í heimsókn á Ásvelli, en leikurinn hefst klukkan 19.00.
Heil umferð verður leikinn á fimmtudaginn í 1.deildinni.
KA-menn sigruðu Hauka í fyrri umferðinni 2-1 eftir að markalaust hafi verið í hálfleik. Denis Curic skoraði eina mark Hauka í leiknum.
KA eru í 7.sæti með 16 stig, jafn mörg stig og Þór og Fjarðabyggð sem eru í sætunum fyrir aftan KA. Dean Martin er að þjálfa liðið á sínu fyrsta ári og hefur gengi liðsins valdið mörgum norðanmönnum vonbrigði. Dean Martin sem lék í fjölda ára með ÍA fékk Andra Júlíusson til KA á láni frá ÍA nú þegar félagskiptaglugginn opnaði í júlí, en þeir misstu aftur á móti fyrirliða sinn Almarr Ormarsson í Fram og Guðmundur Óli Steingrímsson ákvað að fara til Húsavíkur.
Akureyringar hafa einungis fengið 4 stig í 7 leikjum í útileikjum þeirra í sumar. En eini útileikur þeirra í sumar sem þeir hafa sigrað var leikinn á Akureyravelli er þeir báru sigur úr bítum gegn Þór . Svo gerðu þeir jafntefli við Fjarðabyggð fyrir austan.
Haukastrákarnir sigruðu síðasta leik gegn Víking Reykjavík 2-1 eftir að hafa lent marki undir, Hilmar Trausti og Marco Kirsch skoruðu mörk Hauka en þau voru í dýrari kantinum bæði tvö.
Við hvetjum alla til að mæta á völlinn á fimmtudaginn & hvetja strákana til sigurs!
Haukar – KA – Fimmtudaginn – Klukkan 19:00