Áfram heldur meistaraflokkurinn að sigra og í gær sigruðu þeir sinn sjötta leik í röð bæði í deild og bikar.
Þórsarar mættu til leiks með afar ungt lið og það er alveg með ólíkindum hversu ungt þetta Þórs lið er, og ef norðanmenn halda rétt á spöðunum og allir þessir ungu menn halda áfram hjá Þór, þá er bjart framundan hjá Þór. Í byrjunarliðinu hjá þeim í gær voru þeir með einn strák fæddan 1984, svo einn fæddur 1986 svo eru þeir með einn fæddann 1988, tvo 1990 og þrjá 1991. Til að bæta við reynsluna eru þeir svo með hinn knáa sóknarmann Hrein Hringsson, erlenda varnarmanninn Aleksander Linta og markvörðurinn Árna Skaftason.
Og ef við teljum upp bekkinn hjá Þór þá voru tveir fæddir 1991, einn 1990, einn 1988 og svo varamarkvörðurinn fæddur 1985. Það er því greinilegt að framtíðin er björt hjá Þór.
En að okkar liði, Amir var að vanda í markinu. Í bakvörðunum voru Davíð Ellerts. og Úlfar Hrafn. Í miðverðinum voru þeir Tóti Dan og Philip.
Á miðjunni var síðan Goran og Hilmar T. og fyrir framan þá var Ásgeir. Á köntunum var Hilmar Geir og Edilon. Fremstur af öllum var síðan Denis Curic.
Bekkurinn; Þórir (m), Danny, Jónas, Hilmar Emils., Pétur.
Þórir kom inná, á 44.mínútu eftir að Amir hafði lent í samstuði við framherja Þórs. Jónas og Hilmar Emils., komu svo inn á í síðari hálfleik fyrir TótaDan og Edilon.
Ef ég mundi skrifa einungis um færi Þórs í leiknum þá væri þessi umsögn lokið, þar sem Þórsarar áttu ekki eitt einasta færi í leiknum.
Haukarnir áttu hins vegar nokkrar góðar sóknir. Í fyrri hálfleik var Denis Curic nokkrum sinnum næstum sloppinn einn inn fyrir vörn Þórs, en Árni í marki þeirra var alltaf aðeins á undan í boltann. Staðan í hálfleik var 0-0.
Í seinni hálfleik héldu við áfram að sækja og uppskárum mark á 63.mínútu er Hilmar Trausti gaf innfyrir vörn Þórs og þar var Hilmar Geir kominn einn á móti Árna og lagði boltanum í nærhornið meistaralega gert. 1-0.
Og þannig endaði leikurinn, sjötti sigurleikur Hauka í röð staðreynd.
Næsti leikur er útileikur gegn Stjörnunni á fimmtudaginn klukkan 20:00. Stjörnumenn eru eins og Haukar í toppbaráttunni og er þetta algjör lykill leikur fyrir bæði lið. Fjölmennum í Garðabæinn og hvetjum strákana til sigurs.
Áfram Haukar !