Haukar – Þór á morgun

Það er nóg að gera hjá strákunum okkar þessa dagana. Sigruðu HK í bikarnum á miðvikudaginn og í hádeginu var dregið í 8-liða úrslitin og þar kom í ljós að þeir munu mæta Fylki á Ásvöllum.

En næst á dagskrá er leikur Hauka og Þór á morgun, laugardag klukkan 14:00 á Ásvöllum.

Haukar; Eru í 4.sæti deildarinnar með 15 stig. Tveimur stigum á eftir Stjörnunni sem eru í 3.sæti og fjórum stigum á eftir Selfoss sem eru í 2.sæti. Haukar hafa sigrað síðustu fimm leiki, þrjá í deild og tvo í bikarnum og eru því á fljúgandi siglingu.

Þór; Eru í 9.sæti með 9 stig einungis þremur stigum frá fallsæti. Þeir töpuðu síðasta leik gegn grönnum sínum í KA 1-0 en KA-menn skoruðu í uppbótartíma. Þar áður töpuðu þeir gegn Víking Reykjavík þar sem Víkingar skoruðu sigurmarkið undir lok leiksins. Vörn Þórsara hefur ekki verið að spila sem skyldi í sumar og hafa fengið næst flest mörk á sig í deildinni eða 19 talsins, en einungis botnlið Leiknis hefur fengið fleiri mörk á sig.

Dómarar; Valgeir Valgeirsson verður á flautunni, en á flöggunum verða þeir, Sigurhjörtur Snorrason og Jónas Geirsson. Eftirlitsmaður Ksí á leiknum verður Hannes Þ Sigurðsson.

Haukaspáin; Það ætti að vera logn mest allan tímann, en þeir sem þekkja til Ásvalla þá verður maður alltaf að vera tilbúinn í smá rok. Veðrið ætti ekki að trufla leikmenn beggja liða, né áhorfendur til að mæta á leikinn því samkvæmt veðurfræðingi Haukaveðurspánnar verður veðrið með besta móti.

Við hvetjum alla til að mæta á leikinn á morgun, strákarnir eiga það algjörlega skilið, þar sem þeir hafa verið að spila flottan bolta í sumar og eru í baráttu um sæti í Landsbankadeildinni.

Allir á völlinn – ÁFRAM HAUKAR!

Haukar – Þór, klukkan 14:00 á Ásvöllum á morgun, laugardag.