Lengjubikarsmeistarar

Meistaraflokkur kvenna varð Lengjubikarsmeistari í C-deild þann 12. maí þegar þær unnu Hött 4 – 0 en leikurinn var leikinn í Boganum á Akureyri. Mörk Hauka í leiknum gerðu Sara Björk, Dagbjört og Sigurborg var með 2 mörk en hún kom til liðs við Hauka í vetur frá Sindra. Fyrir sigurinn fengu Haukastelpur gullmedalíu og 100.000 kr. Þessi sigur sýnir það Haukastelpurnar eru til alls líklegar í sumar og verður því gaman að fylgjast með þeim í sumar en fyrsti leikur þeirra er útileikur á móti ÍR þann 24. maí kl. 14:00 á ÍR-velli.

Myndin er af sigurreifum Haukastelpum eftir leikinn á móti Hetti. Fleiri myndir eru í myndaalbúminu hér á síðunni.