Nýr leikmaður til Hauka

Andri Marteinsson þjálfari Hauka heldur áfram að styrkja lið sitt fyrir komandi átök í 1.deildinni og nú er orðið ljóst að nýr leikmaður mun spila að öllum líkindum í Hauka treyjunni á mánudaginn næstkomandi, hvað þá á fimmtudaginn er Haukar spila síðasta æfingarleik sinn fyrir tímabilið. En ákveðið hefur verið að Guðmundur Kristjánsson 19 ára leikmaður frá Breiðablik og U19 ára liðs Íslands komi til Hauka, tímabundið lán, en Blikar geta óskað þess að fá hann hvenær sem er í sumar.

Guðmundur leikur oftast nær á miðjunni og verður ef til vill mikill liðsstyrkur fyrir okkurí sumar.

Guðmundur hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Blika á undirbúningstímabilinu, en í fyrra var hann í leikmanna hóp Blika í þónokkrum leikjum. Guðmundur hefur leikið 17 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og þar af skorað eitt mark.

Við bjóðum að sjálfsögðu Guðmund velkomin í Hauka og vonum að hann hjálpi liðinu í komandi átökum.

Meistaraflokkur karla:

Afturelding – Haukar – Æfingarleikur, Fimmtudaginn kl. 19:00 í Mosfellssveit.

Meistaraflokkur kvenna:

Haukar – FH – Deilarbikarnum, Föstudaginn kl. 20:00 á Ásvöllum

Meistaraflokkur karla:

Haukar – Víkingur Ó. 1.umferð ÍSLANDSMÓTS, Mánudaginn kl. 17:00 á ÁSVÖLLUM!

Spennandi sumar í væntum , ALLIR Á VÖLLINN – ÁFRAM HAUKAR!