Sara Björk byrjar á móti Finnum

Sara Björk spilar sinn 7. A-landsleik á morgun í seinni æfingaleiknum gegn Finnum í Finnlandi. Heimasíða KSÍ birti í dag liðsuppstillinguna liðsins í leiknum á morgun og samkvæmt þeim upplýsingum mun Sara Björk taka stöðu Margrétar Láru sem framherji. Sara byrjaði einnig inni á í fyrri leiknm sem endaði með 1-1 jafntefli.

Æfingaleikirnir eru liður í undirbúningi landsliðsins fyrir leiki í undankeppni Evrópumótsins sem fara fram í sumar.