Jólaball og jólafrí framundan

Síðustu æfingar yngri flokkanna fyrir jólafrí verða föstudaginn 14. desember. Jólafríið hefst svo formlega með glæsilegu jólaballi á Ásvöllum, sunnudaginn 16. desember frá kl. 17-19 í Veislusalnum. Það kostar 500 krónur á Jólaballið og innifalið í því er bingóspjald og nammipoki á leiðinni heim.

Á jólaballinu verður eitthvað í boði fyrir alla barna- og unglingaflokkana: Jólabingó, Jólasveinar, tónlistaratriði með Ceres4 (Hlyni þjálfara 4. 5. & 6.flokks karla, sem sló í gegn í Eurovisionforkeppninni með jólaslagarann Hey, Hey, Hey, we say Ho, Ho, Ho). Þá verður heljarinnar Jólabasar þar sem alls kyns varningur verður til sölu á hlægilegu verði: gamlir búningar, íþróttagallar, þvílíkt flottir markmannsbúningar, bækur, diskar, alls kyns dót! Komið og gerið reyfararkaup (á jólagjöfum kannski?). Þá verða ýmsar veitingar í boði á góðu verði.

Það eru allir, fótboltafólk sem aðrir, Haukafólk sem „ekki-Haukafólk“ velkomnir á Jólaballið.

Mánudaginn 14. janúar hefjast æfingar síðan formlega aftur. Ég ætla þó að biðja iðkendur unglingaflokkana um að kynna sér það hjá hverjum þjálfara nákvæmlega hvernig jólafríið verður því eldri flokkarnir gætu æft lengur og byrjað eitthvað fyrr eftir áramót.