2. deildar meistarar!!!

Fyrir leikinn í dag voru liðin í 1. og 2. sæti með 38 og 33 stig. Haukar voru búinar að tryggja sér sæti í 1. deild að ári en Selfoss þurfti sigur til þess að nálgast 1. deildarsætið. Með sigri er jafntefli í dag gátu Haukar tryggt sér sigur í deildinni þrátt fyrir að ein umferð sé eftir þannig að þar var til mikils að vinna fyrir bæði lið sem spiluðu ekki með sín sterkustu lið því að í lið Hauka vantaði markahrókinn unga Ásgeir Þór þar sem hann var í verkefni með U-19 ára landsliði Íslands og í lið Selfoss voru tveir leikmenn í banni.

Byrjunarlið Hauka var þannig að Amir var í markinu. Jónas, Þórhallur Dan(Fyrirliði), Óli Jón og Davíð Ellerts voru í vörninni og á miðjunni voru Kristján Ómar og Goran og á kontunum voru Hilmar Geir og Edilon og í fremstu víglínu voru Garðar Ingvar og Ómar Karl.

Í fyrri hálfleik var fátt um fína drætti og skiptust liðin á að skapa sér hálffæri þó voru Sellfyssingar í við sterkari en það voru Haukamenn sem komust yfir undir lok fyrri hálfleiks þergar Hilmar Geir fékk boltann við vítateig Selfoss og þrumaði boltanum upp í bláhornið nær með vinstri, afar glæsilegt mark þar á ferð.

Svo bætti Hilmar Geir við öðru marki á 61. mínútu þegar hann fékk góða sungusendingu hægra megin inni í víta teig Selfyssinga og var því kominn einn á móti markmanni Selfoss sem var engin fyrirstaða fyrir Hilmar sem bætti við sínu öðru marki í leiknum og því 7. í deildinni í sumar og er hann 3. markahæðsti leikmaður liðsins.

Í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum þó sköpuðu Haukar sér hættulegri færi, helsta hættan upp við mark Hauka var úr föstum leikatriðum Selfyssinga. Gaman er að segja frá því að á 84. mínútu koma Andri Geir Gunnarsson inn á í sínum fyrsta meistarflokksleik fyrir Hauka og stóð sig með príði.

Sigur Hauka staðreynd og sigur í deildinni sem er ánægjulegt sem og það að Haukar eru ennþá taplausir í deidinni. Sigurinn í dag var sigur leiðsheildarinnar og voru það einna helst Hilmar Geir sem var sí ógnadi, Þórhallur Dan (Tóti Kóngur) sem stjónaði vörninni eins og kóngur og Kristján Ómar sem var með mikla baráttu á miðjunni og vann hvern boltann á fætur öðrum. Svo var Haukasveitin líka á sínum stað í stúkunni og hélt fjöri í mannskapnum.

Síðast leikur Hauka í deildinni er á heimavelli á Ásvöllum laugardaginn 15. sept kl. 14:00 á móti ÍR og munu Haukar fá þá bikarinn fyrir sigur í deildinni afhentann. Áfram Haukar!!!

Mynd: Haukar fagna marki fyrr í sumar á móti ÍH