Síðustu leikir Hauka í 2.deildinni

Lokaleikir Hauka í deildinni eru gífurlega mikilvægir. Haukar eiga fjóra leiki eftir í deildinni, tvo útileiki og tvo heimaleiki.

Næsti leikur Hauka er á laugardaginn 25. ágúst en þá fara Haukar í heimsókn á Grenivík og spila á Grenivíkurvelli gegn Magna. Magnamenn eru sem stendur í neðsta sæti deildarinnar með 8 stig. Þeir hafa fengið fimm af átta stigum sínum á heimavelli. Magni eru í harðri baráttu gegn ÍH og Sindra um að bjarga sér frá falli, en einungis eitt lið fellur í deildinni.

Fyrsta dag September mánaðar koma svo Sindra menn í heimsókn á gervigrasið okkar. Sindri er eins og Magni í harðri baráttu um að bjarga sér frá falli, en þeir eru með 10 stig. Fyrri leikur þessara liða endaði með jafntefli 1 – 1. Sindramenn sem rétt sluppu frá falli í fyrra með sigri í lokaleik, ætla sér auðvitað ekki að falla og reyna hvað sem þeir geta til að sleppa við fall. Þetta verður því hörkuleikur fyrir okkar menn.

Sunnudaginn 9.september fara okkar menn austur fyrir fjall og leika gegn Selfyssingum. Selfoss er nú sem stendur í 2.sæti með 29 stig, þremur stigum á eftir Haukum. Fyrri leikur þessara liða sem háður var á Ásvöllum endaði með jafntefli 1-1, en Selfyssingar jöfnuðu á 83.mínútu. Þetta verður gríðarlega erfiður leikur, því Selfyssingar ætla sér ekkert annað en að fara upp. Selfyssingar hafa einungis tapað einum leik á heimavelli og það var gegn Völsungi, 16.júní.

Síðasti leikurinn í deildinni er svo á heimavellinum okkar góða. En þá eigast við tvo efstu liðin í deildinni, Haukar og ÍR. Svo gæti farið að þetta verði hreinn úrslitaleikur um 1.sætið, en allt getur gerst í næstu fjórum umferðinum og staðan í deildinni mikið breyst þangað til. Fyrri leikur liðana endaði 1-1, en Davíð Ellertsson jafnaði úr vítaspyrnu eftir að heimamenn höfðu komist yfir.

Staðan á toppnum eftir 13 umferðir;

1. Haukar 32 stig

2. Selfoss 29 stig

3. ÍR 28 stig

4. KS/Leiftur 28 stig

5. UMFA 22 stig

Staðan í botnbáráttunni;

8. ÍH 10 stig

9. Sindri 10 stig

10. Magni 8 stig

Ég vil því hvetja fólk til að fjölmenna á leikina sem eftir er, þó aðalega kannski á heimaleikina, enda langt að sækja hina leikina.

& í lokin vil ég auglýsa nýja myspace síðu stuðningsliðs Hauka ‘Haukasveitin’

www.myspace.com/haukasveitin

ÁFRAM HAUKAR

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…