Sunnudaginn 2. september verður Uppskeruhátíð Knattspyrnudeildarinnar og Íþróttaskóla Hauka haldin á Ásvöllum kl. 14. Hátíðin verður einnig notuð til að kynna vetrarstarf allra deildanna hjá Haukum og því eru allir nýir sem gamlir haukaiðkendur úr öllum deildum velkomnir. Allir þeir sem stunduðu Íþróttaskóla Hauka eru sérstaklega hvattir til þess að koma og taka á móti viðurkenningum.
Að venju eru það foreldrar sem sjá um bakkelsið. Allir foreldrar iðkenda eru hvattir til að koma með eina köku, eða kruðerí að öðru tagi, inn í Veislusalinn áður en hátíðin sjálf hefst kl. 14 í stóra íþróttasalnum. Kaffið hefst að verðlaunaafhendingunni lokinni.
Vetraræfingatöflurnar taka síðan gildi mánudaginn 3. september og iðkendur ganga upp um flokk. Nánari upplýsingar um æfingatímana liggja brátt fyrir.