Haukasigur fyrir austan

Í gær áttu Haukamenn kappi við Hött frá Egilsstöðum.

Samkvæmt heimildum sem ég fékk, voru Haukastrákarnir mun betri og klaufar að sigra ekki leikinn stærra, en leikurinn endaði 1-0, með marki frá Hilmari Geir Eiðssyni.

Önnur úrslit úr 14.umferð voru þessi;

ÍH 0 – ÍR 0

Völsungur 0 – Selfoss 2

KS/Leiftur 5 – Sindri 2

Afturelding 1 – Magni 0

Nú þegar fjórar umferðir eru eftir, hafa okkar menn 3ja stiga forystu á Selfyssinga sem eru í 2.sæti með 29 stig. Í 3. & 4.sæti eru svo ÍR og KS/Leiftur með 28 stig. Í 5.sæti eru svo Afturelding með 22.stig.

Næsti leikur Hauka er gegn Magna á Grenivík, laugardaginn 25.ágúst