Leikur á laugardaginn á Egilsstöðum

Á laugardaginn næstkomandi munu okkar menn heimsækja Hött á Egilstaði og mun leikurinn hefjast klukkan 14:00 á staðartíma. Þetta er fyrsti leikurinn hjá okkur mönnum eftir tapleikinn gegn Fjölni í bikarnum.

Hattarmenn eru í 7.sæti með 14 stig en þeir hafa verið að bíta frá sér eftir lélega byrjun, en þeir fengu sitt fyrsta stig á heimavelli í 6.umferð gegn Íþróttafélagi Hafnarfjarðar.

Fyrri leikur liðana endaði með 5 – 2 sigri Hauka. Mörk Hauka skoruðu Hilmararnir tveir, en Hilmar Geir skoraði fyrsta markið á 15.míntu, en svo kom Hilmar Rafn okkur aftur yfir , eftir að Ívar K. Hafliðason hafi jafnað. Hilmar Rafn skoraði 4 mörk í leiknum á 9.mínútna kafla. Það var svo Björgvin K. Gunnarsson sem minnkaði muninn undir lok leiksins.

Ekki er hægt að búast við að Hilmar Rafn Emilsson skorði 4 mörk aftur og endurtaki leikinn frá því í fyrri umferðinni, því Hilmar Rafn er enn að glíma við meiðsli og er afar tæpt að hann spili einhvað meira með á tímabilinu.

Í síðasta leik töpuðu Hattarmenn gegn ÍR á útivelli 3-1, en síðasta heimaleik sigruðu þeir 1-0 lið Aftureldingar.

Höttur hafa sigrað tvo heimaleiki, gert tvö jafntefli og tapað tveim og með markatöluna 10-8 á heimavelli.

Síðasti leikur Hauka í deildinni var gegn Aftureldingu og sigruðum við þann leik 3-1 eftir að hafa lent undir. Síðast útileikur í deildinni var gegn KS/Leiftur og endaði sá leikur með jafntefli.

Haukar hafa sigrað þrjá leiki og gert þrjú jafntefli á útivelli og með markatöluna 11-6.

Markahæsti leikmaður Hattar er Denis Curic en hann er jafnframt fimmti markahæstileikmaður deildarinnar.

Dómari leiksins verður Eysteinn Þór Kristinsson og honum til aðstoðar verður hinn knái Miralem Haseta, en ekki er vitað hver hinn verður sem flaggar prikinu, en það verður skemmtilega að sjá.

Við sendum okkar mönnum baráttu kveðju og vonum að þeir munu taka öll stigin sem í boði eru. En eins og flestir vita eru þrjú stig í boði.

ÁFRAM HAUKAR!