Úrtökumót KSÍ um helgina

Á morgun munu tveir Hauka strákar úr 3.flokki fara á úrtökumót KSÍ sem haldið er á Laugarvatni.

Þetta eru þeir Arnar Daði Arnarsson og Marteinn Gauti Andrason. Arnar Daði er markmaður og Marteinn Gauti getur leikið bæði á kanti og einnig sem framherji, en eins og kannski einhverjir vita er Marteinn Gauti sonur Andra Marteinssonar þjálfara meistaraflokks Hauka.

Um 60 strákar eru valdir á úrtökumótið fæddir 1992, en úrtaksmótið verður alla helgina. Skipt verður í 4 lið og spila öll liðin hvert á móti öðru auk æfinga.

Það er annar “Hauka” strákur í hópnum, en Viktor Smári Hafsteinsson sem spilar nú Keflavík æfði knattspyrnu með Haukum þegar hann var yngri og teljum við Haukamenn að hann hafi lært allt sem hann kann nú þegar, hjá Haukum undir handleiðslu Ólafs Arnar Oddssonar.

Freyr Sverrisson yfirþjálfari yngri flokka hjá Haukum sér um æfingarnar.

Samhliða þessu fer fram hæfileikamótun ungra dómara og munu þeir meðal annars sjá um dómgæslu á mótinu.