Aron Freyr á reynslu hjá Vejle

Aron Freyr Eiríksson ungur og efnilegur leikmaður 3.flokks Hauka fór á reynslu til Vejle í Danmörku laugardaginn 28.júlí og var þar í 6 daga. Hann æfði með U-17 og U-18 ára liði félagsins en hann kom svo inná síðasta hálftímann í æfingarleik með varaliði félagsins gegn varaliði Silkeborgar en Íslendingarnir í liði Silkeborgar Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson voru í liðinu og skoraðu þeir báðir í leiknum, en leiknum lauk með 4-2 sigri Silkeborg.

„ Fyrst og fremst er þetta góð lífsreynsla fyrir mig þar sem leikmenn sem ég var að spila með og á móti voru hátt í 15 árum eldri en ég og þar á meðal einn besti markvörður Danmerkur sem stóð í markinu hjá Silkeborg. Það voru líka fullt af góðum leikmönnum að spila þennan leik, sem eru að reyna koma sér í form, því að tímabilið í Danmörku er rétt að hefjast“

Aðspurður um framhaldið hafði Aron þetta að segja „ Ég fór á fund með stjórnendum og þjálfara þarna og þeir sögðust hafa áhuga að fá mig aftur til æfinga hjá þeim í 30 daga eða svo til að geta kynnst mér almennilega og til að fylgjast meira með mér fótboltalega. Þeir vildu líka að ég kynnist dönsku lífi utan fótboltans, það er ekki nóg að hafa bara áhuga á fótboltanum þarna heldur þarf maður að geta haft gaman að því að vera þarna utan boltans“

Hann var mjög ánægður að aðstöðuna hjá félaginu „ Aðstaðan er mjög góðan þarna og það er séð fyrir öllu, það eru yfirleitt þrír þjálfarar með hvern flokk og eru alltaf með augun á því sem er að gerast og ef tempóið fer einhvað niður eru þeir fljótir að koma því aftur á fullt. Æfingarsvæðið er mjög gott og margir æfingarvellir. Það er verið að byggja nýjan keppnisvöll sem á vera bylting fyrir Vejle og stuðningsmenn liðsins “

Annar Íslendingur, Björn Orri Hermannsson leikmaður Fylkis, æfði á samatíma og Aron Freyr með Vejle og spilaði einnig gegn Silkeborg.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…