Nú fyrr í kvöld, féllu Haukar úr bikarnum í miklum marka leik gegn Fjölni, 4-3. Mikill fjöldi áhorfenda frá Hafnarfirði lagði leið sína á völlinn og skemmtu þeir sér flest allir mjög vel.
Umfjöllun um leikinn mun líklega koma inná síðuna síðar frá Herberti Inga Sigfússyni.
Ég ákvað samt sem áður að taka viðtal við markaskorarar Hauka í leiknum, Ásgeir Þór Ingólfsson, en hann hefur spilað mjög vel í allt sumar og skorað þau ófá mörkin fyrir Hauka í sumar, en þetta er einungis hans fyrsta tímabil fyrir Hauka í meistaraflokki.
Jæja, núna er bikarævintýrið hjá Haukum á enda, það munaði ekki miklu að þið munduð komast áfram ?
– Nei, alls ekki. Við hleyptum þeim inn í leikinn á 10. mínúta kafla í leiknum og eftir að hafa lent manni færri, byrjaði þetta að vera afar erfitt, 3-1 undir á móti Fjölni á útivelli er ekki neitt sem neinn andstæðingur óskar sér. En við neituðum að gefast upp og héldum áfram og minnkuðum muninn í 3-2 svo í 4-3, en þessi leikur hefði getað farið á báðar vegur.
Já, svo sannarlega og þið afsönnuðuð það enn og aftur í sumar, að þið eigið ekki heima í 2.deildinni, En þetta bikarævintýri hlýtur að hafa gefið þér sem leikmanni mikla reynslu ?
– Já, það hefur gert það. Ég hef fengið mikla reynslu hjá Haukum og mikið af sénsum og ég er mjög ánægður að vera fá þessa sénsa að byrja leikina. Svo hafa strákarnir hvatt mig í gegnum alla þessa leiki svo ég er sáttur með Haukana og strákana í liðinu.
Þú hefur átt mjög gott tímabil í sumar, hverjum viltu helst þakka þeim árangri ?
– Fyrst og fremst vill ég þakka Andra Marteinssyni þjálfara, fyrir öll tækifærin sem ég hef fengið og svo auðvitað strákunum í meistaraflokki, svo auðvitað stuðningsmönnunum okkar, þeir hafa lagt mikið á sig til að koma og vill ég þakka bæða strákunum í flokknum og stuðningsmönnunum Hauka kærlega fyrir mig og vonandi á þetta eftir að vera áfram svona næstu ár.
Já, það er búið að vera mikil stemming á pöllunum í sumar, er það ekki allt öðruvísi að spila fyrir framan fleiri áhorfendur ?
– Það er allt annað. Mér finnst við vera 1 manni fleiri að hafa svona stuðning.
En núna er það bara deildin, er ekki bara stefnt á sigur í deildinni ?
– Fyrst og fremst var stefnt á 1.deildina. En klárlega ætlum við að halda haus og klára þessa deild með stæl . Það er ekkert annað í stöðunni.
Ég spurði Ásgeir, hvort hann væri nokkuð á leið frá Haukum & þá í atvinnumennsku ?
– Eins og staðan er í dag er ég í Haukum. Svo ræðst það bara hvort einhver lið hafi áhuga á mér. Það verður bara gaman að sjá. En auðvitað vill ég fara út, það er draumur hvers leikmanns.
Ég spurði svo Ásgeir í lokin, Hvernig það væri að spila með jafn reyndum leikmanni og Þórhalli Dan ?
– Það er algjör draumur, mjög gaman að heyra reynslumanninn segja manni til svo maður geti lært af honum. Ég hef lært mikið af honum, hann hjálpar mér innan sem utan vallar í hvert skipti sem mig vantar svar eða hvatningu. Hann er maðurinn sem allir á Íslandi mundu vilja spila með og er ég mjög heppinn að hafa mann eins og hann sem getur hjálpað mér í gegnum þessi ungu ár. Hann er snillingur sem allir fíla.
Ásgeir hafði svo þetta að segja í lokin;
Ég vill bara þakka öllum Haukamönnum fyrir frábært tímabil sem komið er. Og segi ég bara ÁFRAM HAUKAR.
Við þökkum Ásgeir Þór Ingólfssyni fyrir þetta viðtal.
Og í lokin minni ég bara á næsta heimaleik meistaraflokks karl en hann er 1.september sem er laugardagur. En þá etja Haukar kappi við Sindra frá Höfn í Hornafirði. En við munum koma með frekari fréttir um þann leik þegar nær dregur.