Þá er að koma að því. Haukar í 8 – liða úrslitum í Visa-bikarnum. Enn þá munum við fara í heimsókn til Reykjavíkur, nánar tiltekið í Grafarvoginn og spila gegn hinum sígulu Fjölnismönnum. Við Hauka fólk ætlum að gera okkur góðan dag og byrja hann snemma á mánudaginn.
Við ætlum að mæta öll hress á Ásvelli kl.16:00 og þar verður boðið uppá grillaðar pylsur/pulsur, boðið verður uppá andlitsmálingu og síðast en als ekki síst verður upphitun fyrir leikinn, en þá mun trommusveitin hita upp fólk og byrja hita upp raddböndin, því að hver rödd skiptir máli. Þegar upphitunin lýkur verður svo boðið uppá rútuferðir fyrir þá sem það vilja uppá Fjölnis-völl þar sem við munum halda áfram að hvetja okkar lið til sigurs. Svo vonum við auðvitað það besta.
Leikurinn mun svo hefjast á þeim skemmtilega tíma 18;30
Meira um leikinn mun flæða inná síðuna um helgina.
Ég lýk þessari færslu bara með orðunum;
ÁFRAM HAUKAR!