Á Ásvöllum í kvöld áttust við liðin sem spáð voru efstu tveim sætunum í deildinni, Haukar og Afturelding. Haukar sem enn eru taplausir í deild og bikar hafa verið heppnir í undanförnum leikjum og fyrir leikinn hefðu þeir gert þrjú jafntefli af síðustu fimm leikjum. Fyrri leikur liðanna sigruðu Haukar 3-1 eftir að hafa lent 1-0 undir.
Ómar Karl Sigurðsson var í banni í leiknum í kvöld og Hilmar Rafn Emilsson og Bjarki Jónsson meiddir.
Byrjunarlið Hauka var því þannig skipað að í markinu stóð Amir Mehicca, í vörninni voru jaxlar á borð við Jónas Bjarnason, Óla Jón Kristinsson og Davíð Ellertsson og ekki með gleyma fyrirliðanum okkar Þórhal Dan Jóhannsson, kónginum sjálfum.
Á miðri miðjunni var aldursforsetinn Goran Lukic en hann er einmitt 22 dögum eldri en Þórhallur Dan. Með aldurforsetanum var rauðkálið sjálft í öllu sínu veldi Kristján Ómar Björnsson. Á köntunum voru svo hinir efnilegu Hilmar Geir Eiðsson og Edilon Hreinsson. Framherjar kvöldsins og þeir sem áttu að halda uppi fjörinu voru svo Yared Yedeneskachew og hinn spræki Ásgeir Ingólfsson.
Þeir sem fengu það skemmtilegahlutverk að verma varamannabekkinn voru menn eins og Árni Hjörvar Hilmarsson, Davíð Jónsson, Ágúst Garðarsson, Úlfar Pálsson og Garðar Geirsson en þeir tveir síðast nefndu eiga tvennt sameiginlegt báðir eru þeir fæddir á því herrans ári 1988 og einnig eiga þeir það sameiginlegt að hafa komið inná í leiknum í kvöld.
Leikurinn hófst við ágætar aðstöður en áhorfendur í Hafnarfirðinum voru afar fáir þegar dómari leiksins Erlendur Eiríksson flautaði leikinn á, en svo fjölgaði þeim örlítið þegar á leikinn leið.
Gestirnir komust yfir strax á 6.mínútu þegar Arnar K. Óskarsson gaf boltann fyrir frá hægri á Rannver Sigurjónsson sem var einn og ávaldaður fyrir utan teig Hauka, en hann tók við boltanum og skaut skoti á markið sem Amir Mehicca í marki Hauka náði ekki að verja. 1-0 staðan orðin. Eftir þetta vöknuðu heimamenn heldur betur til lífsins og voru að öllu leyti mun betri á vellinum. Á 16.mínútu fengu Haukar mjög gott marktækifæri þegar þeir fengu aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi gestanna, aukaspyrna Kristjáns Ó. Björnssonar datt fyrir fætur Goran Lukic sem átti ágætt skot en beint á Kjartan Pál Þórarinsson sem varði með fótunum og náðu gestirnir að hreinsa frá.
Heimamenn jöfnuðu svo á 26.mínútu þegar Hilmar Geir Eiðsson kom askvaðandi upp hægri kantinn og var kominn inní teig þegar hann renndi boltanum út á hinn unga Ásgeir Ingólfsson sem renndi boltanum í nær hornið og staðan orðin 1-1. Heimamenn voru ekki hættir og átti Hilmar Geir Eiðsson tvö góð skot að marki gestanna og eitt þeirra varði Kjartan Páll meistaralega.
Á 40.mínútu átti Goran Lukic skalla eftir hornspyrnu en boltinn fór í hliðarnetið og mínútu síðar var Ásgeir Ingólfsson kominn upp hægri kantinn, hann átti sendingu fyrir en Hilmar Geir sem var í ágætri stöðu missti boltann frá sér og rann því efnileg sókn Hauka til fjara. Þegar 45.mínútur voru komnar á vallarklukkuna áttu Haukar góða sókn, Hilmar Geir átti skot að marki Aftureldingar en Kjartan Páll varði glæsilega í horn, úr horninu fór Kjartan í algjört skógarhlaup en Haukar náðu ekki að nýta sér það og fengu annað horn og úr því áttu þeir skot sem fór rétt framhjá.
Eftir þessa sókn var svo flautað til hálfleiks, staðan í Hafnarfirði 1-1.
Seinni hálfleikurinn byrjaði fjörlega fyrst áttu heimamenn færi sem endaði með slöku skoti. Í næstu sókn komst síðan Sævar Alexandersson einn inn fyrir vörn Hauka en Amir í marki Hauka varði glæsilega og voru Haukar heppnir að lenda ekki undir þarna.
Nokkrum mínútum síðar fengu Haukar tvö góð færi, fyrra færið áttið Hilmar Geir eftir sprett frá Ásgeiri upp hægri kantinn, fékk Hilmar Geir boltann inní teig meðfram rennblautu gervigrasinu, teygði hann sig í boltann og yfir Kjartan Pál í markinu en einnig markið sjálft. Það var svo Hilmar Geir sem gaf fyrir á Edilon í næstu sókn en skot Edilons endaði í hliðarnetinu.
Eftir þessar fjörlegumínútur róaðist heldur betur leikurinn og náðu gestirnir að komast örlítið meira inní leikinn og áttu nokkur hálffæri það var því eiginlega gegn gangi leiksins þegar Ásgeir Ingólfsson skoraði fyrir Hauka en hann hafði náð boltanum af varnarmanni Aftureldingar og stungið sér inn fyrir og lagði boltann svo undir Kjartan.
Varamaðurinn Torfi Geir Hilmarsson átti skalla að marki Hauka á 87.mínútu en Amir átti í litlum erfiðleikum með skallan og greip hann.
Það var svo í uppbótartíma þegar besti leikmaður vallarins Hilmar Geir kórónaði leikinn sinn og skoraði eftir að hafa snúið af sér einn varnarmann Aftureldingar og lagt boltann framhjá Kjartani.
Lokastaðan því 3-1 Haukum í vil.
Næsti leikur okkar manna er svo á mánudaginn næstkomandi í 8-liða úrslitum Visa-bikar karla. Sá leikur verður háður í Gravarvogi og etja þá okkar menn kappi við hinu sígulu leikmenn Fjölnis.
Við Haukamenn ætluðum AUÐVITAÐ að fjölmenna á leikinn og ætlum við að hittast á mánudaginn kl. 16.30 á Ásvöllum og þar verður boðið uppá grillaðar pylsur/pulsur og andlitsmálingu fyrir alla, já ekki bara fyrir litlu krakkana nei, líka fyrir þá fullorðnu.
HVETJUM STRÁKANA ÁFRAM Í BIKARNUM Á MÆTUM Á VÖLLINN!
ÁFRAM HAUKAR