2. flokkur karla er kominn áfram í Visa bikarnum en þeir mættu Selfoss á þriðjudaginn var á Selfossi í mjög góðu fótbolta veðri á gervigrasvelli Selfyssinga.
Selfoss komst yfir eftir rúmar 10 mínútur en þar var að var að verki Viðar Kjartansson og hélst sú staða út hálfleikinn þrátt fyrir að Selfoss réði lögum og lofum í leiknum og Haukar heppnir að staðan væri bara 1 – 0. Það var bara Þórir í markinu sem hélt Haukum inn í leiknum með nokkrum frábærum vröslum.
Í seinni hálfleik mætu Hauka menn dýrvitlausir til leiks og sköpuðu sé nokkur færi án þess þó að boltinn færi í netið. Það var síðan Úlfar sem braut ísinn um miðjan seinni hálfleik og staðan orðin 1 1, fáeinum mínútum síðar lék Andri Geir á einn varnarmann Selfoss og vítaspyrna dæmd af heldur furðulegum dómara leiksins. Andri skoraði örugglega úr vítinu og Haukar komnir yfir 1 2.
Svo undir lok leiksins náði Úlfar á bæta við marki eftir að hafa verið kominn einn inn í gegn og leikið á markmann Selfoss. Stuttu síðar náðu Selfoss að minnka muninn eftir misheppnað úthlaup hjá Þóri og var það Viðar sem minnkaði muninn fyrir Selfoss. Nokkrum mínútum fyrir leikslok fékk einn leikmaður Selfoss að líta rauða spjaldið fyrir brot á Ásgeiri og það líkaði Ásgeiri ekki við og sparkaði í áttina til leikmannsins og fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Leikurinn endaði 3 2 fyrir Hauka og þeir komnir áfram í bikarnum. Bestir í Hauka liðinu voru Þórir sem var frábær í markinu og Úlfar sem stjórnaði sóknaraðgerðum Hauka af stakri snilld. Næsti leikur liðsins í bikarnum en annað hvort á móti Stjörnunni eða Keflavík en sá leikur verður 12. júlí á útivelli.
Um næstu helgi fer liðið á Akureyri og leikur þar tvö leiki, við KA og Þór. Næsti leikur liðsins eftir það er 8. júni á móti Val á Hlíðarenda en næsti heimaleikur liðsins er 14. júní á móti Víkingi/Berserkjum. Í sumar leika Haukar með A og B lið í 2. flokki og leikur B-liðið sinn fyrsta leik þriðjudaginn 29. maí kl. 20.00 á Ásvöllum á móti Víkingi/Berserkjum. Áfram Haukar!!!