Aðalfundur Knattspyrnudeildar Hauka
Aðalfundur Knattspyrnudeildar Hauka verður haldinn miðvikudaginn 7.mars kl. 17:30 á Ásvöllum. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verður kynnt nýtt skipurit sem er verið að taka í gagnið hjá félaginu. Um er að ræða nokkuð róttækar breytingar á skipulagi Knattspyrnufélagsins Hauka í heild sinni sem allt Haukafólk er hvatt til að koma og kynna sér á fundinum.
