foreldrafundur – fundargerð

Foreldrafundur v/4.fl. kvenna 13. nóvember 2006

Kynning:

Ólafur Örn Oddsson

Gsm. 694-3073

olafodds@hvaleyrarskoli.is

Heimasíða flokksins: http://blogg.central.is/haukagellur4

Frá fundinum: Virkja þarf betur heimasíðu Hauka.

Áherslur Markmið: að búa til betri einstaklinga

Grunntækni(Knattrak og brellur, spyrnur og skallar, móttaka og stjórnun, leikfræði ofl)

Þolþjálfun, kraftur og snerpa

Kannanir reglulega til að fylgjast með framförum.

Æfingar og keppni

Fyrir áramót:

Æfingar verða 3-4x í vikur fyrir áramót.

Æfingaleikir 2 leikir í nóvember og 1-2 í desember (auk þess æfingaleikir við strákana).

Jólafrí frá 15.desember – 15. janúar (Ekkert jólamót).

Eftir áramót

Æfingar 4x í viku.

Mót í Reyjaneshöllinni. Dagsetning ekki tilbúin.

Faxaflóamót í apríl – maí.

Íslandsmót júní – september (10-12 liða deild, 5-6 leikir + úrslitakeppni)

Í sumar verða ekki helgaræfingar.

Frá fundinum: mikil óánægja um að við skyldum bara æfa 3x í viku meðan að aðrir eldri flokkar innan félagsins eru 4x í viku. Einnig er lélegt að hafa ekki innanhús tíma.

Um miðjan júlí verður frí á Íslandsmótinu fram yfir verslunarmannahelgi og því er tilvalið fyrir fólk að nýta þann tíma í sumarfrí.

Önnur mót/keppni

Mót sem þarf að velja um:

Reycup- 4 vikan í júlí

Siglufjörður – 2 vikan í ágúst

Símamótið -Kópavogi- 3 vikan í júlí

Annað sem vert er að skoða

Útlönd: td.

Gothia cup-2 vikan í júlí 60.000kr. í Svíþjóð.

USA- ca:12-27 júlí 106.000kr.

Danacup í Danmörku.

Frá fundinum: Reycup er málið og Siglufjörður virtist ekki eiga upp á pallborðið hjá foreldrum.

Skoða verður vandlega hugmyndina um utanlandsferð og jafnvel að fá kynningu frá ferðaskrifstofum varðandi það. Margir töldu að yngra árið væri of ungt til að fara á mót erlendis. Einnig kom upp sú hugmynda að skoða knattspyrnuskóla í t.d. Englandi eða Hollandi.

Önnur mál

Frá fundinum: Í foreldrastjórn voru valdir: Ólafía (móðir Margrétar Sif, Gyða (móðir KristínarAspar), Valdimar (faðir Viktoríu). Haft verður samband við fleiri.

Alls mættu foreldrar frá 14 stúlkum, betur má ef duga skal því þetta er aðeins 50% mæting.

kv. Óli

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…