Haukastrákar í landsliðsúrtök

Haukar eiga fjóra fulltrúa á landsliðsæfingum KSÍ sem fara fram núna um helgi.

Andri Geir Gunnarsson mun æfa með U19 ára landsliðinu á meðan Aron Freyr Eiríksson og Jón Hjörtur Emilsson (Nonni) æfa með U17 ára liðinu. Þá verður markvörðurinn efnilega Arnar Daði Arnarsson á U16 ára landsliðsæfingum, undir leiðsögn Haukaþjálfaranum Frey Sverrissyni sem jafnframt er landsliðsþjálfari U16 ára liðsins.

Við óskum strákunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.