Foreldrafundur hjá 6.flokk kvenna

Foreldrafundur hjá 6.flokk kvenna verður haldinn kl. 18:00 miðvikudaginn 25.október á 2.hæðinni í íþróttahúsinu á Ásvöllum. Fundur tekur vonandi ekki mikið meira en hálftíma, en dagskrá fundarins verður í grófum dráttum þessi:

1. Fulltrúi barna og unglingaráðs setur fundinn. Óskað eftir fólki í foreldrastjórn. Tekið á móti iðkendaskráningablöðum.

2. Þjálfari situr fyrir svörum.

3. Fulltrúi barna og unglingaráðs gengur frá stofnun foreldrastjórnar, svarar

spurningum og fl.

4. Fundi slitið og foreldrastjórn tekur til starfa.

Ég vona að sem flestir foreldrar og forráðamenn mæti.

Kv. Kristján Ómar