Númeri of stórir

Meistaraflokkur karla spilaði sinn fimmta leik í fyrstu deild karla mánudaginn 12. júní. Leikurinn var leikinn á móti Fram en þeir féllu úr Landsbankadeildinni sumarið 2005. Fyrir leikinn var Fram í öðru sæti með 10 stig, stigi á eftir Fjölni en Fram átti einn leik til góða. Haukar voru hinsvegar í áttunda sæti með 4 stig jafnmörg og Stjarnan sem var í sjöunda sæti og líka Þór Ak. sem var í níunda sæti.

Byrjunarlið Hauka var hið sama og á móti HK í síðasta leik en sá leikur tapaðist 2 – 0.

Liðið var þannig að Amir var í markinu, fyrir framan hann voru Albert en hann var eins og í öðrum leikjum sumarsins fyrirliði en með honum í vörinni voru Pétur Örn, Óli Jón og Davíð Ellerts. Á miðjunni voru Kristján Ómar, Ryan, Hilmar Geir og Edilon svo fyrir framan þá var Árni en í fremstu víglínu var Jónmundur.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Hauka því strax á fyrstu mínútu fékk Davíð Ellerts gult spjald fyrir brot á einum Frammara. Fyrsta færið kom í leikinn á 8. mínútu og það féll í skaut Frammara en þá slapp Jónas Grani Garðasson einn inn í gegn og fékk Amir einn á móti sér sem varði vel og náði síðan boltanum aftur.

Fyrsta tilraun Hauka var á 11. mínútu en þá átti Edilon gott skot eftir góðan sprett en skotið fór í einn Frammara og horn dæmt en ekkert kom svo úr horninu. Á sömu mínútu fékk Hilmar Geir gult spjald. Þrem mínútum seinna fengu Framarar dæmt víti eftir að brotið hafði verið á Helga Sigurðssyni. Ingvar Ólafsson tók vítið en markmaður Hauka, Amir Mehica, gerði sér lítið fyrir og varði vítið frá Ingvari glæsilega en varnarmenn Hauka náðu svo að hreinsa boltanum úr vítateig sínum.

Ekkert markvert gerðist fyrr en á 34. mínútu en þá fékk Daði Guðmunssson, leikmaður Fram, boltann á vinstri kantinumog sendi boltann inn í teig og þar var Helgi Sigursson einn á auðum sjó og setti boltann framhjá Amir í marki Hauka og kom Fram í 0 – 1. Á næstu mínútum gerðist fátt markvert og eftir lítinn uppbótartíma flautaði Kristinn Jakobsson til hálfleiks.

Í hálfleik gerðu Haukar tvær breytingar á liði sínu en þá komu Ómar Karl Sigurðsson og Jónas Bjarnasson inn á fyrir Árna Hjörvar Hilmarsson og Davíð Ellertsson. Á fyrstu mínútum seinni hálfleiks var mikið um miðjuþóf en Framarar voru ívið betri.

Á 59. mínútu náði Fram liðið snarpri sókn og sendu boltann inn í og þá áttu Haukar erfitt með að hreinsa og einn Frammari fékk boltann, sendi háann bolta og þá fóru tveir Haukamenn upp í skallabolta sem endaði með því að Pétur Örn skoraði sjálfsmark og staðan orðin 0 – 2 Fram í vil.

Á 66. mínútu átti Ingvi Ólafsson góðann sprett upp miðjuna og lék á hvern Haukamanninn á fætur öðrum og skaut síðan á markið en boltinn fór í einn varnamann Hauka en Ingvar fékk boltann aftur og skaut svo aftur að marki Hauka og í þetta skipti fór boltinn í markið og staðan því orðin 0 – 3. Það má segja að Ingvar hafi þarna bætt fyrir vítið sem hann misnotaði fyrr í leiknum.

Á 68. mínútu áttu Haukar eitt af sínum mjög fáu marktækifærum í leiknum en þá lék Jónmundur á tvo Framara og skaut síðan á markið en Ögmundur Kristinsson varði vel í marki Fram. Á 75. mínútu gerðu Haukar sína síðustu breytinug í þessum leik en þá kom Hilmar Geir útaf fyrir nafna sinn Emilsson.

Á 87. mínútu átti varamaður Fram, Ingólfur Þórarinsson, góðann sprett upp hægri kantinn og átti síðan gott skot í stöng. Á þeim mínútum sem eftir voru af leiknum gerðist hreinlega ekkert og sigur Fram 0 – 3 staðreynd.

Þessi leikur var einn slakasti leikur meistaraflokks karla hjá Haukum í sumar en nokkrir ljósir punktar og það er það að hópurinn er að stækka það sást að Jónas Bjarnason var að leika sinn annan leik og Ómar Karl sinn fyrsta en hann hefur verið á bekknum í nokkrum leikjum. Myndir úr leiknum er hægt að sjá á www.haukar.is/fotbolti síðan er farið í myndir og þar sést þetta strax.

Eitt vandamál hefur þó komið upp hjá Haukum í 1. deild karla í sumar og það er það að Haukar eru ekki að fá nein almennileg færi á heilum 90 mínútum og Haukar hafa aðeins skorað 2 mörk í sumar í 1. deildinni en þessu er hægt að kippa í liðinn og það þarf að gerast strax.

Næsti leikur Hauka er föstudaginn 16. júní kl. 20:00 en sá leikur er í bikarnum einmitt á móti Fram á Ásvöllum og þá er tilvalið að koma fram hefndum og hvet ég sem flesta að láta sjá sig á leiknum.

En næsti leikur Hauka í 1. deildinni er á móti Leikni en hann er á Leiknisvelli föstudaginn 23. júní kl. 20:00. Áfram Haukar!!!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…