Skagamótið – nýr tími

Skagamót Coke og KB banka – Nýr tími

Í sumar verður farið á mót á Akranesi. Þetta var á vef IA (www.ia.is):

Skagamót Coke og KB banka 2006 verður haldið 23.-25. júní. Undanfarin ár hefur mótið verið haldið aðra helgi í júlí. Það hefur verið viku á eftir Esso móti hjá KA og viku á undan Símamóti Breiðabliks. Á næsta ári ber svo við að einungis vika er á milli Esso móts og Símamóts og því var ákveðið að færa Skagamót Coke og KB banka til 23.-25. júní 2006. Þá verður mótið haldið viku á undan Shellmóti ÍBV. Mótið er því haldið tveimur vikum fyrr en venjulega.

Við munum að sjálfsögðu mæta á þetta mót. Skráning hefst fljótlega í febrúar.

kv. Óli

gsm 6943073