Loks sigur í spennuþrungnum leik.

1. deild karla. Ásvellir 5. ágúst 2005.

Lið Hauka

Amir –

Davíð, Óli Jón, Daníel, Geoff –

Hilmar Geir, Rodney, Kristján Ómar, Edilon –

Hilmar Emils, Þorvaldur.

Davíð Jónsson hóf þennan leik í stöðu hægri bakvarðar í stað Pétur Örns. Var þetta hans fyrsti leikur fyrir Hauka á ferlinum. Hilmar Trausti hóf leikinn á bekknum, ku hann hafa verið eitthvað veikur í vikunni. Í hans stað lék Rodney á miðjunni.

Ekki var við öðru að búast en hörkuleik hér þar sem fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum og í mikilli fallhættu. En fyrir þennan leik höfðu Haukmenn aðeins uppskorið 2. stig úr seinustu 5 leikjum sínum í deildinni og skoraði í þeim ekki nema aðeins 1 mark. Var því ljóst að það væri alveg gríðarlega mikilvægt fyrir okkar menn að ná öllum þeim stigum er hér voru í boði.

Leikurinn byrjaði vel fyrir gestina er komu sér innfyrir vörn Hauka í tví- ef ekki þrígang. En Amir í markinu stóð fyrir sínu. Eftir þetta jafnaðist leikurinn nokkuð og fátt eitt markvert gerðist í lengri tíma. Ekki var nú margt jákvætt né skemmtilegt að sjá á leik Hauka í hálfleiknum. Staðan í hálfleik var 0-0.

Hilmar Trausti kom inn fyrir Hilmar Emils í hálfleik og Daði Dervic færði þá Rodney í framlínuna en Hilmar T. tók hans stöðu á miðjunni. Strax á 3. mínútu síðari hálfleiks kom svo löng stungusending innfyrir vörn Fjölnis á Þorvald, sem átti ekki í neinum vandræðum með að koma knettinum í mark Fjölni. Staðan orðin 1-0. Það var svo 4. mínútum seinna að

Þorvaldur var aftur á ferðinni. Með bakið í mark Fjölnis fékk hann boltann frá Hilmari T., tók hann boltann á bringuna og sendi svo rakleitt í þaknet gestanna. 2-0.

Ekki liðu nema 12. mínútur til viðbótar þar til að Þorvaldur fékk tækifæri á að skora sitt þriðja mark í leiknum. En þá var Rodney brugðið í vítateig Fjölnis og dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu. Hana lét svo Þorvaldur verja frá sér. Útlit var fyrir spennuþrungnar lokakafla leiksins er Fjölnismenn fengu dæmda vítaspyrnu, sem þeir skoruðu úr og náðu með því að minnka munin í 2-1 á 67. mínútu.

Enn versnaði útlitið er Rodney var vísað af velli á 72. mínútu leiksins og þurftu því Haukamenn að verja eins marks forskot sitt einum leikmanni færri það sem eftir lifði leiks. Í kjölfarið litu dagsins ljós magnþrungnar lokamínútur þar sem Fjölnismenn sóttu nær látlaust. Áttu þeir m.a. skalla í slánna á 85 mínútu og annað dauðafæri litlu síðar. Þegar leikklukkan sýndi næsta 95. mínútur flautaði Leiknir Ágústsson dómari leiksins loks leikinn af og 3. gríðarlega mikilvæg stig loks kominn í hús.