1. deild karla. Ásvellir 8. júlí 2005.
Lið Hauka
Jörundur –
Svavar (Hermann ´45), Óli Jón, Daníel, Geoff –
Rodney (Ómar Karl ´75), Hilmar T., Kristján Ómar, Hilmar Geir (Davíð E. ´45) –
Hilmar Emils, Þorvaldur.
Helstu breytingar á byrjunarliðinu voru þær að báðir miðverðir okkar, þeir Óli Jón og Daníel voru aftur komnir í inn eftir nokkura leikja fjarveru vegna meiðsla. Einnig var Þorvaldur í byrjunarliðinu í fyrsta sinn á þessu tímabili.
Eins og svo oft áður byrjaði leikurinn fjörlega. Þrátt fyrir að leika á móti vindi í fyrri hálfleik voru við heimamenn komnir yfir eftir
aðeins 2. mínútur. En þá var dæmd óbein aukaspyrna á KA-menn eftir að Matus Sandor markmaður þeirra gerði sig sekan um klaufaleg mistök er hann tók upp með höndunum sendingu frá samherja sínum. Þorvaldur Már lagði knettinum út á Kristján Ómar sem sendi lágann fastann bolta í vinstra horn Sandors. Svo sannarlega góð byrjun heimamanna.
Um 12. mínútum síðar náði svo Þorvaldur að koma knettinum í mark KA-manna eftir sendingu Rodneys af hægri kantinum en var markið dæmt af vegna rangstæðu. Það var svo á 25. mínútu að gestirnir náðu að jafna leikinn. Var þar á ferðinni Hreinn Hringsson er komst innfyrir vörn
okkar eftir fínt samspil. Átti hann ekki í vandræðum með að stýra knettinum framhjá Jörundi í markinu, enda Hreinn alvanur slíku.
Eftir þetta tóku gestirnir frá Akureyri flest völd á vellinum. Áttu þeir m.a. skot er endaði í stöng Haukamarksins. Hálfleikstölur urðu þó 1-1.
Í hálfleik gerði Daði Dervic tvær breytingar á liði Hauka og m.a. færði Goeff Miles úr vinstri bakverðinum og fram á vinstri kantinn.
Gestirnir héldu þó áfram að vera líklegir við mark Hauka. En þegar um klukkustund var liðin af leiknum fóru Haukmenn að hressast verulega. Komu margar hættulegar sóknir okkar manna upp vinstri vænginn þar sem Goeff sýndi oft lipra takta. Virtist vera eins og KA-menn væru einfaldlega bara búnir á því.
Nokkrum sinnum voru strákarnir okakr mjög nálægt því að koma einu marki í net Sandors, en allt kom fyrir ekki – Lokatölur 1-1.