5-1 Stórtap í bikarnum gegn Val

VISA Bikarkeppni karla 16-liða úrslit, Hlíðarendi 4. júlí 2005.

Lið Hauka

Jörundur –

Pétur, Svavar, Davíð Ellerts (Óli Jón ´46), Geoff –

Hilmar Geir – Hilmar Trausti – Kristján Ómar – Betim (Úlfar ´46) –

Rodney –

Ómar Karl (Þorvaldur ´46).

Daði Dervic notaðist við sömu liðsuppstillingin og þeirri hann beitti í leiknum gegn Víkingi seinasta föstudag, nema hvað Jörundur var kominn í markið í stað Amirs.

Frá fyrstu mínútu voru þeir rauðklæddu mjög beittir og ætluðu greinilega að láta frændur sína í 1. deildinni ekki komast upp með neitt múður. Treystu þeir greinilega mikið á Baldur Aðalsteinsson á hægri vængnum og reyndu mikið að fara þar upp.

Þó voru það Haukar er áttu fyrsta góða færi leiksins er Hilmar Geir átti fyrirgjöf frá hægri þar sem Rodney náði ekki að stýra knettinum á mark Valsara.

Það var svo á 17 mínútu að Valsmenn fengu gefins aukaspyrnu næstum alveg við vinstri hornfána okkar. Hana tóku þeir mjög fljótt þar sem Jörundur var ekki kominn á sinn stað í markinu. Garðar G. átti ekki í miklum vandræðum með að koma knettinum í netið. Sannarlega skrítið mark og verulega súrt þar sem að leikurinn hafði verið nokkuð jafn það sem af var liðið.

Á 34 mínútu var svo aftur komið að Baldri á hægri væng Valsmanna, eftir góðan sprett náði hann að koma boltanum fyrir mark á Sigurð Þorsteinsson sem stýrði knettinum stýrði knettinum í netið með viðkomu í miðverði Hauka. Staðan í hálfleik 2-0.

Daði Dervic tók þá áhættu að nota allar sínar skiptingar í hálfleik og tók þá Ómar Karl, Davíð og Betim útaf og setti þá Úlfar, Óla Jón og Þorvald inná í þeirra stað. Þá færði hann Rodney aðeins framar á völlinn og vorum við þá líkast til komnir í venjubundna 442 uppstillingu.

Baldur var ekki nema 5 mínútur að koma heimamönnum í 3-0 og allt leit út fyrir að öll von væri úti. En ekki nema mínútu síðar fékk Rodney Hann fékk sendingu inn fyrir vörn Vals frá hinum 17 ára gamla Úlfari Pálssyni og náði að koma knettinum framhjá Kjartani í markinu. Nú örlaði aðeins fyrir smá von.

Ekki stóð það lengi yfir því Garðar skoraði í strax á 57 mínútu úr hornspyrnu, staðan því orðin 4-1 og úrslitin næsta ráðinn og í raun aðeins forgangsatriði að klára leikinn.

Valsmenn fengu svo vítaspyrnu gefins á 72 mínútu eftir að Pétur hafði brotið nokkuð klaufalega af sér. Úr henni skoraði hinn laglegi skagamaður örugglega, og var því kominn með þrjú mörk, ágætis dagsverk og það á mánudegi.

Rodney var mjög nærri því að minnka muninn aðeins er hann átti stangarskot af stuttu færi, en allt kom fyrir ekki. Endaði leikurinn því með 5-1 yfirburðasigri Reykjavíkurmeistaranna og næst efsta liðs efstu deildar. Nokkuð stór sigur eftir allt saman, þó hefði verið gaman að sjá hvernig leikurinn hefði þróast hefðum við ekki fengið þetta klaufalega mark á okkur á 17 mínútu. En svona er fótboltinn.

Maður leiksins að þessu sinni var líklegast Hilmar Trausti sem svo sannarlega ber nafn með rentu. Einnig stóð Rodney fyrir sínu og var geysilega duglegur eins og vanalega. Var hann í raun eini maður okkar er gerði einhvern usla fyrir framan Valsmarkið. Kristján Ómar stóð einnig vel fyrir sínu í seinni hálfleik.

Það ánægjulegast við þennan leik er það að hinn 17 ára gamli Úlfar Pálsson fékk í fyrsta skiptið að spreyta sig og stóð sig með ágætum þær 45. mínútur er hann fékk að spreyta sig. Einnig var ánægjulegt að sjá fyrirliða okkar hann Óla Jón vera aftur kominn af stað eftir að hafa misst marga leiki út vegna meiðsla.

En eftir stendur að rauða liðið hafði sigur í dag. Skulum við vona að það verði einnig niðurstaðan í næsta leik okkar, deildarleiknum á móti KA á Ásvöllum föstudaginn 8. júlí næstkomandi.