Dregið var í 32-liða úrslit VISA-bikars karla á Hótel Nordica núna áðan. Andstæðingar okkar í þessari umferð verður lið Þróttar frá Reykjavík.
Leikurinn verður spilaður á Ásvöllum mánudaginn 20. júní næstkomandi klukkan 19:15.
Verður þetta að teljast mjög athyglisverður dráttur fyrir okkur Haukamenn vegna þeirra staðreynda að úr Haukaliðinu og í Þrótt gengu tveir leikmenn, þjálfarinn sem og liðstjóri okkar í lok seinasta tímabils.
Hér er átt við þá Sævar Eyjólfsson, Edilon Hreinsson, þjálfarann Þorstein Halldórsson og svo liðstjórann margfræga, sjálfan fyrrverandi forkólf dvergaklúbbsins – Helga Sævarsson.
Einnig er þar að finna sóknarmanninn Davíð Loga Gunnarsson er lék með Hafnarfjarðarstórveldinu sumarið 2003.