Nú er að líða að fyrsta alvöru leiknum hjá okkar stelpum og er komin nákvæm tímasetning.
Það er mæting 13:45 í nýja húsið í Kaplakrika á laugardaginn 23ja apríl og spilum við frá 14:00-15:00.
Það vantar alltaf hjálplegar hendur þegar stelpurnar fara á mót og gaman væri ef einhverjir myndu bjóða sig fram sem klappstýrur.
Þar sem margir eru að koma að þessu í fyrsta skipti að þá vil ég að þið vitið að ég er með keppnisbúninga.
En það sem stelpurnar þurfa sjálfar að vera í eru stuttbuxur og sokkar.
Ég verð með bæði stuttbuxur og sokka til sölu á laugardaginn ef einhverjir hafa áhuga á.
Þetta er kostatilboð og kostar bæði stuttbuxur og sokkar 1000 kr.-
Hægt er að kaupa hvort tveggja stakt og kostar það 500.-
Haukakveðja