3-0 sigur gegn ÍR

Deildarbikarinn fór vel af stað fyrir Hauka sem sigruðu ÍR næsta örugglega í fyrstu umferð í gær, sunnudaginn 13. mars í Reykjaneshöllinni. Daði Dervic, þjálfari Mfl. karla, stilltu upp eftirfarandi leikmönnum í 4-4-2 leikkerfi:

Kiddi

Pétur – Danni – Óli – Davíð E

Hilmar G – Hilmar T – Kristján Ó – Betim

Ómar Karl – Hilmar R

Það tók Hauka nokkrar mínútur að koma sér inn í leikinn en að þeim mínútum loknum tóku Haukar að herja að marki ÍR. Á 14. mínútu skoraði Hilmar Rafn laglegt mark með því að „planta“ boltanum út við stöng eftir léttan snúning rétt fyrir utan teig. Hilmar fékk tvö opin og góð færi á næstu mínútum, en var klaufi að bæta ekki við á markareikninginn.

Á 31. mínútu dró aftur til tíðinda þegar Ómar Karl skoraði af svipuðu færi og Hilmar hafði fengið í fyrsta markinu, eftir einfaldan samleik Hauka upp hægri kantinn. Skot Ómars var ekki fast en alveg út við stöng þar sem annars ágætur markvörður ÍR kom engum vörnum við. Stuttu þar á undan hafði sá hinn sami varið meistaralega skot Hilmars Trausta eftir vel útfært aukaspyrnukerfi. Enginn annar en Óli Jón var mættur á staðinn til að hirða frákastið og mokaði boltanum yfir línuna en það mark var þó ekki dæmt löglegt sökum grunsamlegs rangstöðudóms á Óla Jón. Eftir annað markið dró eilítið af Haukamönnum og virtist þreyta í fótleggjum sumra hafi þegar farið að segja til sín þá.

Í hálfleik var gerð ein breyting, Davíð E. skipti við Birgi Rafn som kom inn á miðjuna í staðinn fyrir Hilmar T. sem datt niður í vinstri bakvörðinn.

Vinstri höndin átti greinilega að duga til að klára leikinn fyrir Haukana, sem komu hálfsofandi til leiks í seinni hálfleik. Lítið var eftir af því ágæta spila sem sást á köflum í fyrri hálfleik og almenn deyfð færðist yfir. Einungis vangeta ÍR-inga á vallarhelmingi andstæðinganna kom í veg fyrir að munurinn yrði minnkaður og er alveg ljóst að sterkara og sókndjarfara lið hefði náð að nýta sér værukærð leikmanna Hauka í seinni hálfleik. Allt kom fyrir ekki, og var leikurinn frekar lítið fyrir augað í seinni hálfleik þrátt fyrir endurtekna viðleitni beggja liða til betri knattspyrnu.

Daði gerði fleiri skiptingar í seinni hálfleik: Andri og Þorvaldur (sem nýlega hefur hafið æfingar á nýja leik eftir nokkuð löng meiðsli) komu inn á fyrir Betim og Hilmar R. Stuttu seinna komu Hermann og Davíð J. í stað Hilmar T. og Péturs.

Á 80. mínútu átti sér stað mjög ljótt brot þar sem sóknarmaður ÍR tæklaði Danni illa aftan frá þegar sá síðarnefndi var við það að sparka boltanum fram á við. Danni brást heldur of harkalega við og veittist að leikmanni ÍR og hlaut beint rautt spjald en ÍR-ingurinn einungis gult spjald. Haukar léku því einum færri síðustu tíu mínúturnar, sem virtist þó ekki breyta miklu þar sem ÍR náði ekki frekar en fyrri daginn að skapa teljandi hættu við mark Haukanna. Í staðinn skoraði Óli Jón örugglega úr vítaspyrnu sem Haukar fengu á lokamínútunni eftir að Ómar Karl var felldur inn teig.

Haukar áttu 24 skot að marki ÍR, og þar af voru 10 sem hittu á markið, á meðan ÍR gerði sig 13 sinnum líklega til markaskorunar en einungis 4 skot þeirra hittu á ramman. Nánari tölfræði úr leiknum kemur innan skamms.

Heilt yfir áttu Haukar sæmilegan leik, sem dugði til að leggja af velli 2.deildarlið ÍR, en liðið verður án efa að færa leik sinn upp um nokkur gæðaþrep eigi liðið að sigra sterkari andstæðinga. Lítið reyndi á Kidda í markinu en leysti hann þó öll þau vandamál sem upp komu. Varnarlínan spilaði vel og átti ekki í teljandi vandræðum með sóknarmenn ÍR. Miðjuspilið var mjög svo upp og ofan þar sem góðir spilakaflar sáust á milli þess sem lúnar lappir sumra hlýddu skipunum eigenda sinna illa. Ómar Karl og Hilmar R. voru mjög vinnusamir og duglegir við að koma sér í færi í fyrri hálfleik.

Hermann, Þorvaldur og Betim voru allir að leika sinn fyrsta opinbera leik fyrir Hauka og óskum við þeim öllum til hamingju með það. Næsti leikur Hauka verður næstkomandi sunnudag þann 20. mars í Reykjaneshöllinni. Þá munu Haukar etja kappi við BÍ á ekki kristnilegri tíma en 11:00.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…