Darri Johansen, fyrrverandi fyrirliði Meistarflokks karla og núverandi meðlimur Meistarflokksráðs, hefur lagt sitt að mörkum við að gera heiminn að betri stað með því að fjölga rauðhærðum í heiminum, en Darri eignaðist son laugardaginn 6. mars. Við óskum Darra og frú hjartanlega til hamingju með frumburðinn og teljum niður dagana þar til nýr Johansen mun hlaupa í búningi Hauka á Ásvöllum.